Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 30. júní n.k og er þetta er í annað skiptið sem hlaupið er haldið. Hlaupið heppnaðist mjög vel í fyrra og voru hlauparar 50 talsins. Fyrirkomulag hlaupsins verður eins og í fyrra. Ræst verður frá Arnarstapa kl. 12:00. Boðið verður upp á rútuferð frá Ólafsvík til Arnarstapa fyrir þá sem vilja. Fiskisúpan verður á sínum stað og léttar veitingar verða í boði að hlaupinu loknu. Snæfellsbær bíður svo öllum hlaupurum frítt í sund.
Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar um hlaupið er hægt að finna á Facebook síðu hlaupsins ásamt nýjum myndum frá því í fyrra sem voru að berast í hús.
Staður og tímasetning Hlaupið verður frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Ræst verður klukkan 12:00 frá Arnarbæ á Arnarstapa.
Rúta verður fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 11:00 frá Söluskála Ok í Ólafsvík og kostar 1.000 kr.
Hlaupaleiðin Hlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 metra hæð síðan tekur hlaupaleiðin að smá lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa klást við snjó og jafnvel smá drullu á leiðinni. En í fyrra voraði seint og þurftu hlauparar að hlaupa c.a. 5km af leiðinni í snjó. Keppendur fá á leiðinni að upplifa einstaka nátturufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Jökulhálsinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan hlaupinu stendur. Drykkjarstöðvar verða á leiðinni sem björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um.
Skoða Snæfellsjökulshlaupið á stærra korti
Flokkaskipting - Karlar 40 ára og eldri
- Konur 40 ára og eldri
- Karlar 39 ára og yngri
- Konur 39 ára og yngri
Skráningargjald Þátttökugjald er sama og í fyrra, 2.000 kr
Forskráning fer fram hér á hlaup.is. Opið er fyrir forskráningu til kl. 20:00 föstudaginn 29. júní. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum.
Verðlaun Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímana og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.
Nánari upplýsingar Hægt er að skoða möguleika á gistingu á: http://www.hellnar.is/, http://www.hringhotel.is/ og http://www.budir.is/
Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát í skemmtilegu hlaupi.
Nánari upplýsingar veita Fannar 840-3708 og Rán 864-4236 eða netfangið: snaefellsjokulshlaupid@gmail.com
|