Eins og undanfarna vetur stendur Langhlauparadeildin fyrir hlaupasyrpu í vetur. Hlaupin fara fram síðasta laugardag í mánuði frá október og fram í mars.
25. október 29. nóvember 31. desember 31. janúar 28. febrúar 28. mars
Hlaupin hefjast við Bjarg kl. 11:00 og þaðan er hlaupinn 10 km hringur.
Skráning er á staðnum frá kl. 10:30 á hlaupadag. Hlauparar geta haft fataskipti á Bjargi og farið í sturtu og heita potta eftir hlaup.
Þátttökugjald er kr. 500 í hvert hlaup. Frítt er fyrir börn og unglinga sem æfa frjálsar íþróttir hjá UFA.
Keppt er í stigakeppni í flokki karla og kvenna og einnig í tveimur aldursflokkum. Aldursflokkarnir skiptast þannig: - Karlar 45 ára og yngri og 46 ára og eldri.
- Konur 39 ára og yngri og 40 ára og eldri.
Allir þátttakendur fá eitt stig fyrir hvert hlaup sem þeir taka þátt í. Fjögur efstu sætin í hverjum flokki gefa síðan 2-5 stig, þannig að fyrsti maður fær 5 stig, annar 4 stig, þriðji 3 stig og fjórði 2 stig.
NÝTT - LIÐAKEPPNI Í vetur verður einnig keppt í liðakeppni. Þrír til fimm geta skráð sig saman í sveit og gildir samanlagður tími fyrstu þriggja í sveitinni í hverju hlaupi (séu fjórir eða fimm skráðir í sveit þurfa þeir því ekki allir að mæta alltaf í öll hlaupin). Stigagjöf fyrir liðakeppnina verður með sama hætti og í einstaklingskeppninni. Fyrsta sveitin fær fimm stig, önnur fjögur og svo koll af kolli.
Verðlaun verða veitt að loknu síðasta hlaupinu. Glæsileg verðlaun frá Ljósgjafanum/Siemens fyrir stigahæstu menn og konur. Stigahæasta sveitin hlýtur verðlaun og dregin verða út útdráttarverðalun. Þátttaka í hverju hlaupi gefur einn miða í pottinum svo þeir sem taka þátt í öllum hlaupunum eiga sex miða í pottinum, vinningsmöguleikar aukast því eftir því sem fólk hleypur oftar.
Hlaupaleiðin Hlaupið upp Austursíðu inn á malarveg sem liggur að Vestursíðu, niður Vestursíðu, eftir göngustíg í gegnum Giljahverfi, Hlíðarbraut, Skógarlundur, Mýrarvegur, Hringteigur, Mímisbraut, Mýrarvegur, Skógarlundur, Hlíðarbraut, Austursíða, Bugðusíða að Bjargi. Kort væntanlegt.
|