Haus 0609-1982
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Forskráningar í hlaup
Hlaupapróf
Maraþonskrá FM
Shoe4Africa verkefni
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Innskráning
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Squeezy gel 110*31
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
25.3.2009
01.05.2009 - Hérahlaup Breiðabliks

Tími og staður
Föstudagur 1. maí 2009 kl. 11:00 í Fífunni, íþróttahúsi Breiðabliks, Dalsmára 5, Kópavogi. Húsið opnar kl. 10:00.

Hérahlaup Breiðabliks
Hlaupnir verða 5 km (tveir hringir) og 10 km (4 hringir) með tímatöku. Leiðin er falleg og mjög slétt og vonandi vænleg til bætinga.

Start og mark
Startað verður og komið í mark við Fífuna, íþróttahús Breiðbliks, Dalsmára 5, Kópavogi.
Þar er möguleiki á að geyma og skipta um föt í búningsklefa og fara í sturtu eftir hlaupið.

Hérarnir
Í báðum hlaupunum, þ.e. 5 km og 10 km hlaupinu er hægt að hlaupa á eftir Hérum á eftirfarandi tempói: 3:30, 3:45, 4:00, 4:30, 5:00, 5:30 og 6:00 mínútum per kílómetra. Jafnvel er möguleiki að biðja um fleiri héra.  Hérana verður hægt að finna við startið og verða þeir sérstaklega merktir í gulum vestum sem á stendur tempóið sem þeir hlaupa á.

Tímataka og flokkaskipting
Tími verður mældur hjá öllum og úrslit birt eftir aldursflokkum í karla- og kvennaflokki, sjá eftirfarandi lista:

  • 14 ára og yngri
  • 15-18 ára
  • 19-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70-79 ára
  • 80 ára og eldri

Úrslit
Þegar úrslit liggja fyrir verður hægt að sjá þau á vef Breiðabliks undir flipanum Frjálsar og hér á hlaup.is. Einnig munu birtast þar myndir frá hlaupinu.

Verðlaun
Fyrsti karl og fyrsta kona í 5km og 10km fá bikar til eignar!

Hlaupaleiðin
Startað verður við Fífuna og hlaupið sem leið liggur um Kópavogsdalinn. Hlauparar sem hlaupa 5 km hlaupa tvo hringi en 10 km hlauparar fjóra hringi. Komið verður í mark inni í Fífunni aftur.


Stærra kort

Þjónusta
Eftir hlaupið verður boðið upp á drykki fyrir alla þátttakendur. Hægt verður að fara í sturtu og skipta um föt í búningsklefum íþróttahússins.

Þátttökugjald
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir 14 ára og yngri en 1000 krónur fyrir 15 ára og eldri.

Skráning
Forskráning hér á hlaup.is og síðan á staðnum.

Upplýsingar
Nánari upplýsingar gefur Stefán Guðmundsson s: 866-7262

Réttur til breytinga áskilinn

 

Til baka
66N Kubbur 082010
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Powerade duft breiðari
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Könnun
Á hvaða skótegund hleypur/hljópst þú í Reykjavíkurmaraþoni 2010?
Adidas
Asics
Brooks
Mizuno
New Balance
Nike
Reebok
Saucony
Under Armour
Annað
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
Allur réttur áskilinn.
Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi Hlaupasíðunnarã