Vetrarhlaupasería er haldin á Egilsstöðum veturinn 2008-2009 að fyrirmynd Vetrarhlaupa UFA. Hlaupnir eru 10 km síðasta laugardag í hverjum mánuði yfir vetrartímann með einni undantekningu þ.e. Gamlárshlaupinu.
Dagsetningar hlaupanna eru eftirfarandi: - 25. október 2008
- 29. nóvember 2008
- 31. desember 2008
- 31. janúar 2009
- 28. febrúar 2009
- 28. mars 2009
Hlaupin hefjast kl. 11 við sundlaugina á Egilsstöðum og skráning er frá 10:30 á hlaupadegi.
Þátttökugjald er 500 kr.
Keppt er í stigakeppni í flokki karla og kvenna og einnig í tveimur aldursflokkum. Aldursflokkarnir skiptast þannig: - Karlar 45 ára og yngri og 46 ára og eldri.
- Konur 39 ára og yngri og 40 ára og eldri.
Allir þátttakendur fá eitt stig fyrir hvert hlaup sem þeir taka þátt í. Fjögur efstu sætin í hverjum flokki gefa síðan 2-5 stig, þannig að fyrsti maður fær 5 stig, annar 4 stig, þriðji 3 stig og fjórði 2 stig. Sigurvegarar eru síðan stigahæstu aðilar innan hvers flokks í lok vetrar.
Á hverjum hlaupadegi verða veitt vegleg útdráttarverðlaun.
Nánari upplýsingar hjá Ólöfu.
|