Haus 0609-1982
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Forskráningar í hlaup
Hlaupapróf
Maraþonskrá FM
Shoe4Africa verkefni
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Innskráning
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Squeezy gel 110*31
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
25.6.2009
25.07.2009 - Jökulsárhlaup

Almennar upplýsingar
Jökulsárhlaup 2009 er nú haldið í sjötta skipti þann 25. júlí og verður hlaupið frá eftirfarandi 3 stöðum.

  • Dettifossi - Ásbyrgi 32,7 km
  • Hólmatungur - Ásbyrgi 21,2 km
  • Hljóðaklettar - Ásbyrgi 13,2 km

Sjá einnig upplýsingar á vef hlaupsins www.jokulsarhlaup.is.

Skráning og skráningargjald
Forskráning fer fram á netinu hér á hlaup.is en einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á jokulsarhlaup@jokulsarhlaup.is varðandi greiðslu þátttökugjalda. Skráningu og greiðslu þátttökugjalda lýkur kl. 20:00 þann 22. júlí.

Athugið að skráningargjald hækkar ekki fyrr en 1. júlí í stað 1. júní eins og upphaflega.

Verð ef skráð er fyrir 1. júlí:

  • Hlaup frá Dettifossi:  kr. 7.900. Innifalið rúta, bolur, merki, grill
  • Hlaup frá Hólmatungum: kr. 7.900. Innifalið rúta, bolur merki, grill
  • Hlaup frá Hljóðaklettum: kr. 6.900.  Innifalið rúta, bolur merki, grill

Verð ef skráð er 1. júlí og síðar:

  • Hlaup frá Dettifossi:  kr. 10.900. Innifalið rúta, bolur, merki, grill
  • Hlaup frá Hólmatungum: kr. 10.900. Innifalið rúta, bolur merki, grill
  • Hlaup frá Hljóðaklettum: kr. 8.900.  Innifalið rúta, bolur merki, grill

Ef afskráð er dagana 23.-25. júlí, þá fæst aðeins 25% þátttökugjalds endurgreitt.

Mæting á hlaupsstað
Hlauparar þurfa að mæta í Gljúfrastofu, gestastofu þjóðgarðsins, í mynni Ásbyrgis, laugardaginn 25. júlí, til að fá hlaupanúmer. Tímasetning mætingar er mismunandi eftir vegalengd sem hlaupin er:

  • Dettifoss-Ásbyrgi (32,7km), mæting kl. 10:00, brottför rútu kl. 10:30. Hlaupið hefst kl. 12:00.
  • Hólmatungur-Ásbyrgi (21,2 km), mæting 11:00, brottför rútu kl. 11:30. Hlaupið hefst kl. 13:00.
  • Hljóðaklettar-Ásbyrgi (13,2 km), mæting 12:40, brottför rútu kl. 13:10. Hlaupið hefst kl. 13:45.

Hægt er að skipta um föt á salernum í kjallara Gljúfrastofu.

Rútuferðir að rásmarki
Sem fyrr segir er farið á rútum að rásmarki á stöðunum þremur. Aðstæður við rásmark eru mismunandi en gert er ráð fyrir að eftir rútuferðina hafi hlauparar einhverja stund (10-20 mín.) til að liðka sig fyrir hlaupið. Engin búningsaðstaða er við rásmörk þar eru ekki vatnssalerni, aðeins þurrsalerni.

Þátttakendur geta skilið eftir merkta poka með hlífðarfötum oþh. í rútunni og nálgast þá við markið í Ásbyrgi að hlaupi loknu. Ekki er tekin ábyrgð á verðmætum í þessum pokum.

Hlaupaleiðin
Hlaupið er um stórbrotið land með útsýni yfir Jökulsárgljúfur, þmt. Ásbyrgi. Óhætt er að segja að þessi hlaupaleið eigi engan sinn líka hvað umhverfið varðar. Hrjóstrugasti hluti leiðarinnar er leggurinn Dettifoss-Hólmatungur, en þar er hlaupið á sandi, klöppum og grófum melum. Fyrir sunnan Hólmatungur taka við moldargötur í grónu landi og eftir því sem norðar dregur tekur kjarrlendi við. Vaða þarf yfir eina lindá, Stallá, en þar verða laxapokar fyrir þá sem vilja. Frá Rauðhólum norðan við Hljóðakletta eru hlaupnar götur eftir gömlum farvegi Jökulsár, frá þeim tíma er Ásbyrgi myndaðist og er víða yfir klappir að fara. Síðasti hluti leiðarinnar liggur norður meðfram Ásbyrgi, eftir göngu-/fjárgötum í birkiskógi. Getur það reynst þreyttum fótum heldur erfiður áfangi.

Kort af leiðinni
Hægt er að finna kort af Dettifoss-Ásbyrgi og Hljóðaklettar-Ásbyrgi leiðinni hér á hlaup.is undir Hlaup/Kort/Almenningshlaup. Sjá einnig hæðarsnið af leiðinni.

Drykkjarstöðvar
Boðið verður upp á drykk (vatn/orkudrykk) með uþb. 5 km millibili á eftirfarandi stöðum: Við Dettifoss, norðan Hafragils, á bílastæði við Hólmatungur, við Stallá, á bílastæði við Hljóðakletta, í Kvíum, fyrir botni Ásbyrgis og við Tófugjá austan Ásbyrgis.

Öryggisgæsla
Öryggis hlaupara verður gætt á þeim stöðum þar sem hlaupið er nálægt gljúfurbarmi eða ástæða þykir til. Það skal tekið fram að þátttakendur hlaupa á eigin ábyrgð.

Verðlaun og verðlaunaafhending
Afhending verðlauna fer fram við endamark í Ásbyrgi og er áætlað að það verði kl. 17:00.

Bað / sund
Hægt er að komast í sturtu í þjónustumiðstöð tjaldstæðisins í Ásbyrgi fyrir kr. 200.-. Sundlaugin í Lundi er 5 km austan Ásbyrgis, þar er einnig heitur pottur.

Veitingar
Grillmatur frá Fjallalambi er innifalinn í hlaupagjaldi. Áætlað er að veitingar verði tilbúnar þegar verðlaunaafhendingu lýkur, um kl. 17:30.

Gisting
Í héraðinu er boðið upp á gistingu á allnokkrum stöðum:

  • Tjaldstæðin í Ásbyrgi / Vesturdal
  • Ferðaþjónustan í Skúlagarði, s: 465-2280
  • Ferðaþjónustan í Lundi, s: 465-2247
  • Ferðaþjónustan í Keldunesi, s: 465-2275 / 847-1593
  • Ferðaþjónustan á Hóli, s: 465-2270 / 465-2353 / 846-3835 / 855-2272
  • Gistiheimilið á Kópaskeri, s: 465-2314
  • Víðihóll – orlofsíbúðir Kópaskeri, s: 465-2122 / 869-8166

Myndir frá Jökulsárhlaupi 2004
Skoðið myndir frá hlaupinu 2004 hér á hlaup.is

Upplýsingar um staðhætti


Jökulsá á Fjöllum á upptök sín í Vatnajökli og rennur til sjávar í Öxarfjörð. Við hálendisbrúnina lækkar landið og áin steypist í stórum fossum niður í gljúfrin sem eru við hana kennd. Jökulsárgljúfur eru ein stærstu og hrikalegustu árgljúfur á Íslandi, um 25 km löng, ½ km á breidd og dýptin víða um eða yfir 100 m.

Jökulsárgljúfur og umhverfi þeirra hafa heillað margan ferðalanginn. Gífurleg hamfarahlaup, Jökulsárhlaup, eru talin hafa myndað og mótað gljúfur, gil, klappir og byrgi. Frægust þeirra er Ásbyrgi. Hljóðaklettar við Vesturdal eru innviðir fornra eldstöðva þar sem Jökulsá hefur sópað öllu lausa gosefninu í burtu en litlu norðar standa Rauðhólar, hinir upprunalegu gjallgígar.

Frekari upplýsingar um Jökulsárgljúfur má fá á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.

 

Til baka
66N Kubbur 082010
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Powerade duft breiðari
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Könnun
Á hvaða skótegund hleypur/hljópst þú í Reykjavíkurmaraþoni 2010?
Adidas
Asics
Brooks
Mizuno
New Balance
Nike
Reebok
Saucony
Under Armour
Annað
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
Allur réttur áskilinn.
Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi Hlaupasíðunnarã