Staðsetning og tími Á sumardaginn fyrsta verður Víðavangshlaup ÍR þreytt í 94. sinn og hefst hlaupið kl. 12:00 við Ráðhús Reykjavíkur.
Vegalengd 5 km
Tímataka Hefðbundin (skeiðklukkur, markklukka).
Hlaupaleið Hlaupið er í kringum Tjörnina í miðborg Reykjavíkur. Rásmark er við Ráðhús Reykjavíkur, hlaupið upp Tjarnargötuna, til vinstri inn á Skothúsveg, kringum syðri hluta Tjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg, beygt til vinstri inn á Vonarstræti og það hlaupið til enda. Beygt til vinstri og upp Suðurgötuna, inn á Skothúsveg, aftur kringum syðri hluta Tjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg og hann hlaupinn að Skothúsvegi, beygt inn á Skothúsveg, beygt af honum til hægri inn á Tjarnargötu og niður Tjarnargötuna en markið er við Ráðhúsið Reykjavíkur. Eldra kort af leiðinni
Skoðið Víðavangshlaup ÍR á stærra korti
Merkingar Kílómetrar og beygjur eru vel merkt með keilum. Annars eru þátttakendur hvattir til að kynna sér vel leiðarkort við skráningu í Ráðhúsi Reykjavíkur og hér á hlaup.is.
Drykkjarstöðvar Boðið er upp á Powerade drykki að hlaupi loknu.
Þátttökugjald 1.500 kr. fyrir 15 ára og eldri, 500 kr. fyrir 14 ára og yngri.
Skráning Forskráning hér á hlaup.is til kl. 22 miðvikudaginn 22. apríl og í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl. 10:30 til kl. 11:50
Aldursflokkar Keppt er í eftirfarandi karla- og kvennaflokkum: - 12 ára og yngri
- 13-15 ára
- 16-18 ára
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri
Einnig er keppt í þriggja manna sveitakeppni.
Verðlaun Allir sem ljúka hlaupinu fá verðlaunapening auk verðlauna fyrir fyrstu þrjá í mark í karla- og kvennaflokki og fyrsta karl og fyrstu konu í mark í öðrum flokkum. Einnig verðar dregnir út útdráttarvinningar.
Verðlaunaafhending Í Ráðhúsi Reykjavíkur strax að hlaupinu loknu.
Salerni, fatageymsla Í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Annað (**NÝTT**) Frítt er í Vesturbæjarsundlaug eftir hlaupið.
Nánari upplýsingar Sigurður Þórarinsson Sími: 899-3499 Netfang: sigurdur@thorarinsson.net
|