Hlaupaleiðir og vegalengdir Hlaupaleiðir eru þrjár, 2 km, 4 km og 10 km. Rásmark í öllum vegalengdum er við Glerártorg og endamark við Greifann.
Keppni hefst kl. 13:00 -en athugið að skráningu lýkur kl. 11:30
14 ára og yngri hlaupa 2 km og er hver flokkur ræstur fyrir sig, yngsti flokkurinn fyrstur kl. 13:00 og síðan koll af kolli. Engin tímataka er í 2 km hlaupinu en fyrstu þrír í hverjum flokki fá verðlaunapeninga.
15 ára og eldri geta valið um 4 eða 10 km og hlaupa með eldri hlaupurum. 4 og 10 km. hlaupið fer af stað kl. 13:00. Yngri krökkunum er heimilt að taka þátt í lengri vegalengdunum ef þau treysta sér til. Þau hlaupa þá með þeim eldri og teljast að sjálfsögðu með í skólakeppninni.
Hér má sjá kort af hlaupaleiðunum.
Aldursflokkar
2 km hlaup - 7-9 ára stelpur og strákar
- 10-12 ára stelpur og strákar
- 13-14 ára stelpur og strákar
4 og 10 km hlaup
- 39 ára og yngri, konur og karlar
- 40 ára og eldri, konur og karlar
Þátttökugjöld Í forskráningu - Grunnskólanemendur kr. 700
- Fullorðnir kr. 2000
Á hlaupadag - Grunnskólanemendur kr. 1000
- Fullorðnir kr. 2500
Skráning Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir keppnisdag, það auðveldar mótshöldurum utanumhald og dregur úr örtröð á hlaupadag. Keppnisgjöld eru því lægri í forskráningu auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri.
Forskráning hefst mánudaginn 27. apríl og fer fram í Sportveri og á hér á síðunni. Þeir sem skrá sig í Sportveri greiða þátttökugjöld við skráningu og fá hlaupanúmer sem gilda í hlaupinu og þurfa því bara að mæta tímanlega á fyrir ræsingu á Glerártorg. Þeir sem skrá sig á netinu geta sótt númerin sín á Glerártorg milli kl. 10:00 og 12:30 á keppnisdag og greiða þá þátttökugjöldin. Athugið að skráningu lýkur kl. 11:30 á keppnisdag.
Verðlaun Allir þátttakendur fá viðurkenningarpening, pizzu og Svala Fyrstu þrír í hverjum flokki fá verðlaunapening. Sá skóli sem er með hæst hlutfall þátttakenda hlýtur veglegan farandbikar og eignarbikar. Útdráttarverðlaun fyrir þá sem skrá sig í forskráningu.
|