Staður og tímasetning Skokkklúbbur Icelandair býður þig velkomin(n) til leiks í 15. Icelandair hlaupið, fimmtudaginn 7. maí nk. kl. 19:00. Hlaupið fer að venju fram í kringum Reykjavíkurflugvöll. Vegalengdin er 7 km.
Aldursflokkar - 14 ára og yngri
- 15-18 ára
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri
Skráning Forskráning fer fram á hlaup.is til kl. 12:30 á hádegi 7. maí, en einnig verður hægt að skrá sig á Icelandair hóteli á hlaupadaginn frá kl. 17.
Hlaupaleið
Skoða stærra kort
Verðlaun - Veglegir farandbikarar fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hlaupinu.
- Sérverðlaun veitt fyrir fyrsta sæti í öllum flokkum.
Útdráttarverðlaun
Glæsileg útdráttarverðlaun verða veitt: - Tveir ferðavinningar fyrir tvo á Evrópuleiðum Icelandair
- Tveir flugfarseðlar á leiðum Flugfélags Íslands (innanlands)
- Gisting fyrir tvo í eina nótt með morgunverði á Icelandair hotels.
Þátttökugjald 1.000 kr fyrir fullorðna og 500 fyrir 14 ára og yngri.
Annað Tímataka, markklukka, sjúkragæsla, kílómetramerkingar, brautarvarsla og drykkjarstöðvar.
Þátttaka í hlaupinu gefur punkta í Vildarklúbbi Icelandair.
Nánari upplýsingar Upplýsingar veita einnig Jens Bjarnason, Sigrún B. Norðfjörð og Sigurgeir M. Halldórsson í síma 50-50-300.
|