Nú er sumarið í nánd og margir sem hafa sett markið á keppni í lengri hlaupum nú í vor og sumar. Nú hefur hópur hlaupara á Akureyri ákveðið að standa fyrir keppni í hálfmaraþonhlaupi næstkomandi laugardag, 25. apríl.
Markmið hlaupsins er einkum að gefa áhugasömum hlaupurum kost á að reyna sig í keppni og kanna stöðuna með formlegri tímatöku eftir æfingar vetrarins. Ræst verður frá líkamsræktarstöðinni Átaki klukkan 9:30 og hlaupið sem leið liggur 10,55 km inn í Eyjafjörð og sama leið til baka. Ein til tvær drykkjarstöðvar verða á leiðinni. Keppendum býðst að nota búningsaðstöðuna í Átaki og fara í sturtu og heitan pott að hlaupi loknu.
Þátttökugjald er 500 krónur sem greiðist á hlaupadag. Unnt verður að skrá sig á staðnum frá kl. 9:00 á hlaupadegi en æskilegt er að sem flestir skrái sig með tölvupósti á netfangið einar@iv.is, í síðasta lagi á hádegi á föstudag.
|