Félag 100 km hlaupara á Íslandi stendur fyrir 100 km keppnishlaupi 6. júní, 2009.
Fyrirkomulag 100 km hlaupsins verður í öllum aðalatriðum eins og á síðasta ári. Hlaupinn verður 10 km hringur út Fossvogsdalinn og inn að Gullinbrú. Slaufurnar, hvor 5 km að lengd, liggja út í Fossvoginn annars vegar og yfir að Gullinbrúnni hins vegar.
Miðstöð hlaupsins verður í Elliðaárdalnum. Drykkjarstöðvar verða á sitt hvorum endanum. Hámarkstími til að ljúka hlaupinu er 14 klst. Tímamörk við 50 km eru 6 klst og 30 mín.
Þátttökugjald í 100 km hlaupið er 5.000 kr. - Ákveðið var að bjóða einnig upp á maraþonvegalengd. Maraþonið mun hefjast kl. 15:00 þann 6. júní. Það verður hlaupið á sömu leið og 100 km hlaupið. Fjórir hringir með hæfilegri viðbót. Þátttökugjald er 2.500 krónur.
- Lokafrestur til að tilkynna sig í hlaupin er fram til kl. 20:00 þriðjudaginn 2. júní.
- Auglýst er eftir áhugasömum við að starfa við hlaupið. Framkvæmd þess tekur um 16 klst samanlagt. Vinsamlegast sendið tölvupóst á gunnlaugur@samband.is
Nánari upplýsingar eru á Vefsíðu Félags 100 km hlaupara á Íslandi.
Hægt er að forskrá sig með því að fara inn á eftirfarandi skráningarform og skoða lista yfir forskráða.
|