Staðsetning og tími Hefst kl. 19:00, föstudaginn 12. júní, við Álafoss-kvosina að Varmá (gamla Álfossverksmiðjan), Mosfellsbæ. Ratleikur sveita hefst kl. 19:15. Hlaupið verður frá Álafossi um austursvæði Mosfellsbæjar.
Vegalengdir 9 km með tímatöku og einnig er boðið upp á 4 km ratleik sveita án tímatöku sem hefst kl. 19:15.
Kort Sjá kort af leiðinni.
Nánari lýsing (undirbúningur hlauparans) Leitast er við að velja merktar hlaupaleiðir, en samt óvenjulegar. T.d. göngustígar, stokkið yfir læk, slóði og malarvegur. Á brattann að sækja fyrri helming síðan er farinn malarvegur eða malbik niður í mót. Drykkir verða veittir í lengra hlaupi og við endamark fyrir alla.
Skráning og verð Forskráning er hér á hlaup.is. Forskráningu lýkur föstudaginn 12. júní kl. 13:00. Einnig er skráningi á staðnum frá kl. 18:00 við gömlu verksmiðjuna. - Fæðingarár 1994 og eldri = 1.200 kr
- Fæðingarár 1995 og yngri = 700 kr
- Fjölskyldur greiða = 2.000 kr
Aðstaða Búningsaðstaða er við sundlaug Varmár (Íþróttamiðstöð) frá kl. 18:00.
Verðlaun Allir sem ljúka hlaupi fá sérmerktan verðlaunapening, hlaupanúmer eru til útdráttar og verðlaun verða veitt. Tímataka er í 9 km hlaupi.
Upplýsingar Upplýsingar í síma 699-3456 hjá Hlyn Chadwick. Verslun og menning Álafoss-kvosar býður ykkur velkominn fyrir og eftir hlaup.
|