Fáskrúðsfjarðarhlaupið er haldið í tengslum við hátíðina „Franska daga" á Fáskrúðsfirði og verður haldið föstudaginn 24. júlí 2009 kl. 17.
Hlaupið verður frá Franska spítalanum í Hafnarnesi við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð og inn í þorpið að grunninum þar sem spítalinn stóð áður. Með hlaupinu er vakin athygli á sögu Franska spítalans sem var reistur í þorpinu á Fáskrúðsfirði árið 1904 en síðar fluttur suður fyrir fjörðinn í Hafnarnes.
Vegalengd og tímataka Vegalengdin er 19,3 km og er annað hvort hægt að hlaupa alla leið eða mynda hlaupasveit og skipta leiðinni á milli sín.
Tímataka er í hlaupinu og fjórar drykkjarstöðvar eru á hlaupaleiðinni.
Upphafsstaður hlaups Mæting í hlaupið er við Franska spítalann í Hafnarnesi en hægt verður að sameinast í bíla við gamla Læknishúsið, Hafnargötu kl. 16.
Þátttökugjald Þátttökugjald í 19,3 km hlaupi er 1000 kr. og 500 kr. á mann í hlaupasveit.
Skráning Skráning fer fram á netfanginu: birnabaldurs@gmail.com.
Upplýsingar Nánari upplýsingar: Birna Baldursdóttir, s. 860-8108.
Myndir frá hlaupinu


|