Staður og tímasetning Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn og verður haldið laugardaginn 13. júní og hefst kl. 14 við gróðurhúsið niður við vatn. Gullspretturinn er nú 5 ára og verður haldin afmælisveisla af því tilefni.
Vegalengd og leið Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn.
Skráning og þátttökugjald Skráning á staðnum frá kl. 12 og þátttökugjald er kr. 800. Aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni innifalinn.
Flokkaskipting og tímataka Tímataka er í hlaupinu og keppt verður í karla og kvennaflokki.
Verðlaun Verðlaun í karla og kvennaflokki.
Upplýsingar Öllum þátttakendum boðið upp á hverabrauð Erlu og reyktan silung frá Útey. Í tilefni dagsins býður Veitingahúsið Lindin upp á afmælistertu í gróðurhúsinu.
Nánari upplýsingar grima@ml.is
|