Haus 0609-1982
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Forskráningar í hlaup
Hlaupapróf
Maraþonskrá FM
Shoe4Africa verkefni
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Innskráning
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Squeezy gel 110*31
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
31.5.2009
20.06.2009 - Fjallaskokk yfir Vatnsnesfjall

Laugardaginn 21. júní verður gengið/skokkað/hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi (tjaldsvæðinu) á Hvammstanga. Þetta er um 11 km leið og hækkun á milli 400 - 500 m.

Gangan/skokkið/hlaupið er keppni þar sem gildir að vera sem fyrstur yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið þetta án þess að vera að keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af þessu.

Leiðin
Björgunarsveitin Húnar verða á staðnum og veita leiðsögn yfir fjallið og aðstoð ef þörf er á. Einnig er búið að stika leiðina. Hér getið þið séð kort af leiðinni.

Tímasetning

  • Göngufólk: Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 09:30, lagt af stað með rútu kl. 10:00, áætlaður komutími að Grund kl. 10:20. Ræst er stundvíslega klukkan 10:30.
  • Trimmarar og keppnisfólk: Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 11:30, lagt af stað með rútu kl. 12:00, áætlaður komutími að Grund kl. 12:20. Ræst er stundvíslega klukkan 12:30.

Þátttaka og þátttökugjald
Þátttökugjald, kr. 1200.- fyrir 16 ára og eldri og kr. 800.- fyrir 15 ára og yngri (innifalið er rútan, grillið, verðlaunapeningur og sund). Þátttaka tilkynnist til skrifstofu USVH sími 451-2760/897-9300. Einnig er hægt að senda inn þátttökutilkynningu á netfangið usvh@usvh.is.

Aldursflokkaskipting
15 ára og yngri, 16 - 39 ára og 40 ára og eldri.  Ræst verður í tveimur flokkum, göngufólk, trimmarar/keppnismenn.

Verðlaun
Veittur er bikar fyrir 3. efstu sætin, konum og körlum í hverjum aldursflokki. Þegar komið er niður í Kirkjuhvamm bíður grill og drykkur eftir þátttakendum sem og verðlaunapeningur.

Aðrar upplýsingar
Athugið að hafa með ykkur góða skó, hlý föt og góða skapið!  Góða skemmtun.

USVH og Björgunarsveitin Húnar.

Til baka
66N Kubbur 082010
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Powerade duft breiðari
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Könnun
Á hvaða skótegund hleypur/hljópst þú í Reykjavíkurmaraþoni 2010?
Adidas
Asics
Brooks
Mizuno
New Balance
Nike
Reebok
Saucony
Under Armour
Annað
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
Allur réttur áskilinn.
Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi Hlaupasíðunnarã