Barðsneshlaupið 2009 verður haldið laugardaginn um verslunarmannahelgi eins og venjulega. Að þessu sinni er það 1. ágúst
Einnig verður upp á hálft hlaup frá Hellisfirði eins og undanfarin ár. Allar nánari upplýsingar eru á vef Barðsneshlaupsins.
Forskráning í hlaupið á skráningarsíðu hlaup.is. Hægt er að forskrá sig fram til föstudagsins 31. júlí. kl. 16:00 hér á hlaup.is og á vef Barðsneshlaupsins (láta þá Rúnar Gunnarsson vita í síma 825-7061).
Gjaldið er óbreytt frá síðasta ári, það er 3.000 fyrir Barðsneshlaup og 2.000 fyrir Hellisfjarðarhlaup. Ekki verður að þessu sinni tekið á móti skráningum á bryggjunni eins og verið hefur og eru ástæður þess að ferja þarf alla hlaupara sjóleiðis ýmist til Hellisfjarðar eða á Barðsnes og nauðsynlegt er að vita fyrirfram um fjölda til að næg fley sé til staðar í þá flutninga.
|