Vetrarhlaupasyrpa Hlaupahéranna á Egilsstöðum saman stendur af sex 10 km hlaupum sem hlaupin eru síðasta laugardag í mánuði frá október og fram í mars að undanskildu desemberhlaupinu sem fer fram á gamlársdag. Keppendur safna stigum eftir árangri og stigahæstu einstaklingar eru verðlaunaðir í lok vetrar.
Hlaupin hefjast ávallt við Íþróttahúsið á Egilsstöðum kl. 11:00, nema gamlárshlaupið sem hefst á sama stað klukkan 10:00.
Dagsetningar hlaupanna 1. hlaup: 28. Október 2. hlaup: 25. Nóvember 3. hlaup: 31. desember (hefst klukkan 10:00) 4. hlaup: 27. Janúar 5. hlaup: 24. Febrúar 6. hlaup. 31. mars.
Skráning Á staðnum, hálftíma fyrir hlaup.
Lengd 10 km
Þátttökugjald 1000 kr.
Innifalið í þátttökugjaldi er létt hressing og frítt í sund eftir hlaup (nema eftir gamlárshlaupið, þá er sundlaugin lokuð).
Hlaupaleið Frá íþróttahúsi eftir Tjarnarbraut, beygt til hægri á Selás og hlaupið sem leið liggur eftir Lagarási og Kaupvangi (framhjá Heilsugæslunni, Landsbankanum, tjaldstæðinu og Landflutningum). Hlaupið út á þjóðveginn við Landflutninga og eftir Vallavegi í átt til Hallormsstaðar þar til komið er að merktum snúningspunkti. Sama leið hlaupin til baka.

Annað Dregið er um veglega útdráttarvinninga eftir hvert hlaup. Allir sem taka þátt fara í pottinn.
Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar um hvert hlaup má finna á Facebook-hópnum Hlaupahérarnir
Styrktaraðilar Vetrarhlaupaspyrpunnar 2017-2018 eru: Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum, Gistihúsið Egilsstöðum, Caró hársnyrtistofa, Dekkjahöllin, Skógræktin, Crossfit Austur, N1, Gatorade og Mannvit,
|