|
Anton M
13.3.2015 18:43:04
Sonja Ósk og Þórunn Björk eru fæddar í okt. 2005 og eru því 9 ára. Systurnar greindust með afar erfiðan og sjaldgjæfan litningagalla "Ring chromosome 20 syndrome" sem lýsir sér meðal annars með miklum flogum.
Aðeins er vitað um 40 tilfelli af þessum sjúkdómi síðan hann greindist fyrst 1973.
Aðgangseyrir kr. 1.000,- eða frjáls framlög.
Allir hlaupafélagar, vinir, ættingjar og aðrir sem vilja styrkja þessar dásamlegu systur nú eða hlaupa í góðum félagsskap eru hvattir til að vera með í þessu frábæra framtaki.
Fólk er beðið um að mæta skreytt af gleði og með jákvæðnina að leiðarljósi. Búningar og sprell fær fólk til að brosa og eiga því vel við.
Fjölmiðlar mæta á staðinn og tekin verður hópmynd.
Æfingin fer svo fram eins og vant er en öllum er frjálst að ganga, hjóla og svo frv.
Að æfingu lokinni er frítt í Ásvallalaug.
|