Aftur í Allar umræður spjall hóp
|
|
solhronn
27.9.2009 20:05:44
Mig langar til að forrvitnast um Powerade-hlaupin. Ég er nýbyrjuð að skokka og fer mér hægt. Er vaninn að aðeins fótfráir hlauparar séu í Powerade-hlaupunum eða eru líka þeir sem fara hægt þar (c.a. 70 mín 10 km) ?
|
|
Stefberg
27.9.2009 22:44:28
Ég held að þessi hlaup séu fyrir alla og burtséð frá getu hvers og eins. Sem utanbæjarskokkari þá myndi ég vilja sjá þessi hlaup á helgum svo utanbæjarskokkarar geti komið og tekið þátt ef áhugi er fyrir hendi! Ég hef mikinn áhuga á þessum hlaupum en ég kemst ekki því ég þarf að vinna fimm daga vikunnar og get ekki tekið mér frí á fimmtudegi til að taka þátt í mótinu og bruna strax til baka til að mæta snemma í vinnu á föstudagsmorgni. Það hefði verið gaman ef þessi hlaup væru t.d. á laugardegi því þá gæti maður komið eftir vinnu á föstudegi og tekið þátt í þessu hlaupi daginn eftir. En ég vona að þú farir bara og takir þátt í þessu hlaupi til að vita hvar þú stendur varðandi aðra. Svo vona ég að þú toppir þetta með því að keppa í Reykjavíkurhlaupi í 10 km 2010.
|
|
Dagur
28.9.2009 14:00:28
Það eru allir velkomnir í Vetrarhlaupin óháð hversu hratt þeir hlaupa.
Til fróðleiks set ég hér inn mynd með dreifingu tímanna hjá konum í fyrra (406 tímar).
Sjáumst 8. október,
Dagur
|
|
Helga
29.9.2009 15:34:32
Hvernig er það í þessum powerade hlaupum er hægt að skrá sig sem lið?
|
|
Dagur
3.10.2009 21:11:14
Á þátttökuseðilinn er hægt að skrá félag, skokkhóp eða lið. En við höfum ekki verið með keppni milli þessara hópa.
Við höfum aftur á móti fylgst með fjölda þátttakenda og árangri einstakra hópa og nefnt niðurstöður þessa á úrslitakvöldinu.
|
|
Settu inn athugasemd:
|
|