|
|
Fræðslufundur um styrktarþjálfun hlaupara 8. febrúar
Aftur í Tilkynningar spjall hóp
|
|
Davíð Björnsson
6.2.2016 17:43:52
Fjórði fræðslufundur Laugaskokks og World Class á þessu starfsári verður haldinn mánudaginn 8. febrúar nk. Þar munu Kristín Ólafsdóttir Johnson og Mark Johnson fjalla um styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hvernig heppilegt er að nýta vetrarmánuðina í því skyni þannig að hlauparar mæti sem best undirbúnir í komandi keppnishlaup í vor og sumar. Í fyrirlestrinum fara þau m.a. yfir eftirfarandi þætti:
- Er styrktarþjálfun nauðsynleg?
- Styrktarþjálfun sem forvörn
- Styrktarþjálfun til að bæta frammistöðu
- Jafnframt verða sýnd dæmi um æfingar sem henta hlaupurum í þessu skyni.
Þau Kristín og Mark hafa áralanga reynslu af þjálfun fyrir almenning sem afreksíþróttamenn. Kristín lauk MSc prófi í þróttavísindum og þjálfun og starfar sem íþróttafræðingur hjá Landspítalanum. Hún var í landsliðinu í frjálsíþróttum í mörg ár. Hún hefur jafnframt verið einkaþjálfari og kennari hjá SWorld Class, starfað sem spretthlaupsþjálfari fyrir íþróttalið og verið með byrjendahópa í skokki.
Mark er íþróttafræðingur og sérfræðingur í styrktarþjálfun. Hann kennir m.a. ólympískar lyftingar í World Class og þjálfar afreksíþróttamenn og almenning í einkaþjálfun.
Aðgangur er ókeypis. Ath. að inngangur í fundarsal er í gegnum Joe & the juice. Ath. nýjan fundartíma, kl. 19:30
|
|
Settu inn athugasemd:
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
.jpg) |
 |
 |
 |
Könnun |
 |
 |
 |
|
|
Hlustar þú á músík þegar þú hleypur ? |
|
 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|