Hausmynd2018-RM2017
Squeezy Sport Nutrition
Fréttir
Nýjustu fréttir
Fréttir 2016
Fréttir 2015
Fréttir 2014
Fréttir 2013
Fréttir 2012
Fréttir 2011
Fréttir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
Fréttir 2007
Fréttir 2006
Fréttir 2005
Fréttir 2004
Fréttir 2003
Fréttir 2002
Fréttir 2001
Fréttir 2000
Fréttir 1999
Fréttir 1998
Fréttir 1997
Leit
Áhugavert
Hlaupadagskrá 2018
Skráningar í hlaup
Panta prógram
100km hlauparar
Félag maraþonhl.
Hvítt bil 10 á hæð
Hvítt bil 10 á hæð - 3
Æfingadagbók - 115x79
Hvítt bil 5 á hæð - 1
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 3
English
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Fréttir  >  Nýjustu fréttir
22.3.2018
Arnar, Andrea og Elín Edda á leið á HM í hálfmaraþoni

Arnar p
Það er sjaldan lognmolla í kringum Arnar á hlaupabrautinni.

Andrea Kol­beins­dótt­ir, Elín Edda Sig­urðardótt­ir og Arn­ar Pét­urs­son verða á meðal keppenda á heimsmeistaramótini í hálfmaraþoni sem fram fer á laugardaginn í Valencia á Spáni. Hlaupararnir þrír keppa allir undir merkjum ÍR.

Arn­ar er í feyknaformi um þessar mundir en hann bætti sig um tæpa mínútu í 10 km hlaupi fyrir skömmu. Þetta er í þriðja skipti sem Arnar tekur þátt í heimsmeistaramót­inu. Arnar hljóp í Car­diff fyr­ir tveim­ur árum, þar sem hann varð í 67. sæti á sín­um besta tíma eða 1:08,02 klukku­stund, og í Kaup­manna­höfn árið 2014. Heimsmeistaramótið er liður í undirbúningi Arnars fyrir Hamborgarmaraþonið sem fer fram í lok apríl.

Andrea og Elín Edda eru að keppa á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Hin 19 ára Andrea hefur undanfarin ár verið að þróast úr einum alefnilegasta hlaupara landsins í einn þann besta.

Andrea hljóp gríðarlega vel í hálfu maraþoni í haustmaraþoninu þar sem hún kom í mark á tímanum 1:22:34 klst. og bætti sinn fyrri árangur um rúmar 10 mínútur. Elín Edda sem á tiltölulega stuttan hlaupaferil að baki sigraði í hálfu maraþoni Reykjavíkurmaraþoninu síðasta sumar.

Hlaupið verður að kvöldi til í Valencia á laugardaginn, konurnar fara af  stað 17.05 að spænskum tíma en karlarnir hálftíma síðar. 300 hlauparar frá 87 löndum taka þátt.

Einnig munu fleiri íslenskir hlauparar keppa í hálfu maraþoni í Valencia um helgina, en þeir munu taka þátt í almenningshlaupi sem fer fram samhliða heimsmeistaramótinu. Íslensku keppendurnir eru þeir Vilhjálmur Þór Svansson ÍR, Vignir Már Lýðsson ÍR og Þórólfur Ingi Þórsson ÍR.

Hlaup.is mun að sjálfsögðu vera á vaktinni og færa lesendum tíðindi fljótlega eftir hlaup.

Fréttin hefur verið uppfærð.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
Siggi P Siggi P
23.3.2018 09:08:42
Rétt að leiðrétta að Elín Edda varð ekki Íslandsmeistari í hálfmaraþoni árið 2017 þar sem Íslandsmótið í hálfmaraþoni fór fram á Akureyri. Þar sigraði Anna Berglind Pálmadóttir. Reykjavíkurmaraþon hefur undanfarin ár jafnframt verið Íslandsmeistaramót í maraþonhlaupi en aldrei í hálfmaraþoni enda geta tvenn meistaramót í götuhlaupi ekki farið fram á sama degi skv reglum FRÍ.
 
Settu inn athugasemd:













 
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hlustar þú á músík þegar þú hleypur ?
Nánast alltaf
Mjög oft
Stundum
Nánast aldrei
Aldrei
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is