Í þeim tilgangi að auðvelda og flýta fyrir úrvinnslu úrslita í kjölfar komandi Powerade Vetrarhlaupa hefur þeim sem tekið hafa þátt hingað til verið úthlutað rásnúmeri (sjá lista). Notið þetta númer í línuna ''Kennitala/Rásnúmer'' þegar þátttökuseðillinn er fylltur út. Þeir sem ekki hafa fengið úthlutað rásnúmeri eða hafa rásnúmerið ekki handhægt þegar þátttökuseðillinn er fylltur út geta eftir sem áður notað kennitölu, sem kemur þá í stað rásnúmers.

Athugið að rangt eða illa útfylltur þátttökuseðill getur valdið villum í úrslitum og jafnvel komið í veg fyrir að réttur tími fáist skráður.
Ef spurningar vakna verið í sambandi á vetrarhlaup@hotmail.com. Með fyrirfram þökk fyrir samvinnuna.
Rásnúmerum var úthlutað í hækkandi röð eftir fjölda hlaupa þátttakenda.
Nýjasti listinn er frá 16.10.2013.
|