Mývatnsmaraþon, sem haldið er helgina 18.-19. júní var Íslandsmeistaramót í maraþoni. Úrslit hafa verið birt á úrslitasíðum hlaup.is.
Íslandsmeistarar í maraþoni karla og kvenna eru Þorlákur Jónsson á tímanum 2:46:50 og Elísabet Jóna Sólbergsdóttir á tímanum 3:20:59. Hlaup.is óskar þeim innilega til hamingju.