Þorbergur annar í frönsku utanvegahlaupi

birt 31. júlí 2018
Sigurvegari Laugavegshlaupsins 2018 á fullri ferð.Þorbergur Ingi Jónsson hafnaði í öðru sæti af 1292 hlaupurum í LA 6000D utanvegahlaupinu sem fram fór í Frakklandi á laugardaginn. LA 6000D er 65 km utanvegahlaup með 3500m hækkun en Þorbergur lauk hlaupinu á 6:12:07, frábær árangur það.Inní í gríðarlega þungri æfingavikuÞorbergur hefur síðustu vikuna verið í Chamonix í Frakklandi þar sem hann er í æfingabúðum fyrir Ultra Trail Mont Blanc (UTMB) sem fram fer í lok ágúst. LA 6000D og dagarnir á undan voru því frekar hugsaðir sem æfing en keppni.„Ég var því búinn að taka mjög langar æfingar með miklu klifri dagana fyrir, á miðvikudeginum tók ég 50 km æfingu með 3400 m hækkun, samtals átta tímar og  á fimmtudeginum tók ég fjögurra tima æfingu, 24 km með 1800 m hækkun. Þannig að fæturnir voru vel þungir þegar ég stóð á startlínunni, alveg eins og ég vildi hafa það. En hlaupið var hugsað til að æfa það að hlaupa hratt á mjög þungum fótum, sem er góð æfing fyrir UTMB sem er í lok ágúst.""Því var ég var ekkert endilega að búast við að vinna hlaupið en ég hafði það alltaf á bak við eyrað að standa á palli, en ég skoðaði ekki sérstaklega styrkleika annara keppenda," segir Þorbergur í samtali við hlaup.is. Það má því gera því í skóna að Þorbergur hefði átt mjög góða möguleika á sigri með hefðbundnari undirbúningi.UTMB framundanBrautin í LA 6000D var ekkert lamb að leika sér við, byrjar í 600m hæð og fer hæst í 3050m hæð.  Mesta hækkunin er fyrstu 32 kílómetrana á meðan verið er að vinna sig upp á hæsta toppinn, sem er jökull. Seinni hluti hlaupsins er meira og minna niður í móti fyrir utan eitt og eitt klifur. Stígarnir eru fjölbreyttir, skógar- og rótarstígar, grasslóðar, malarstígar og ofarlega eru brattar og grýttar skriður. Einnig er hlaupið tvo kílómetra á jökli.

Þorbergur hefur átt við smávægileg hælmeiðsli í sumar en segist hafa náð að æfa þokkalega og tekist að auka hlaupamagn mjög mikið síðustu vikur. „Eftir æfingabúðirnar tek ég nokkra rólega daga og fer fljótlega að keyra aðeins á meiri hraða og stíla inn á léttleika. UTMB er síðan 30 ágúst. Eftir það mun ég taka þátt í Súlur Vertical 13. Október og mögulega Les Templiers sem er 70 km hlaup í Frakklandi í lok október," segir þessi magnað hlaupari að lokum.