Laugavegsnámskeið Sigga P. og hlaup.is verður nú haldið í fjórtánda skiptið. Námskeiðið nær yfir fjóra mánuði og hefst í byrjun mars og endar með Laugavegshlaupinu 15. júlí 2023.
Hægt er að taka almennt götu- og utanvegahlaupanámskeið áður en byrjað er á Laugavegsnámskeiðinu, sjá nánari upplýsingar um það hér á hlaup.is.
Árlegur fjöldi á Laugavegsnámskeiðinu hefur verið á bilinu 35-60 manns og hafa þátttakendur lokið hlaupinu á bilinu 5:00 klst til 9:00 klst. Námskeiðið hentar því fólki á öllum aldri og af mismunandi getustigum. Tekið er mið af getu hvers og eins og persónulegar áætlanir gerðar til 4-5 vikna í senn, sniðnar að markmiðum hvers hlaupara. Námskeiðið hentar líka fyrir þá sem ætla að taka þátt í öðrum utanvegahlaupum en Laugavegshlaupinu.
Fyrsta samæfingin verður miðvikudaginn 8. mars 2023 en mánudaginn 6. mars kl. 20 verður haldinn fundur með þátttakendum þar sem farið verður yfir allt það sem snýr að því að taka þátt í hlaupinu og skipulag æfinga .
Skráning á námskeið fyrir þátttöku í Laugavegshlaupinu 2023.
Í grunnþjálfunarundirbúningi felst eftirfarandi:
- Persónuleg áætlun allan tímann, en til 4-5 vikna í senn, sem tekur mið af markmiðum, fyrri hlaupareynslu, meiðslum, núverandi stöðu og fleiru.
- Farið verður sérstaklega í styrktaræfingar sem nýtast fyrir utanvegahlaup.
- Farið verður í nokkrar sameiginlegar fjallaæfingar (Esjan, Hengillinn, Reykjadalur, Helgafell ofl.).
- Fyrirlestur þar sem farið verður yfir alla þætti í undirbúningi, æfingarnar, útbúnað og fleira.
- Afsláttur af ýmsum hlaupavörum.
- Aðgangur að þjálfurunum allan tímann í tölvupósti og/eða í síma.
- Farið yfir ýmsa þjálffræðilega þætti og frekari undirbúning á æfingum.
- 50% afsláttur af hlaupanámskeiðum hlaup.is
- Undirbúningsfundur þar sem farið verður yfir lokaundirbúning fyrir hlaupið.
Gjald fyrir Laugavegsnámskeið í 4 mánuði er 39.900 kr.
Skráningargjald og skráning í hlaup er ekki innifalið í verðinu fyrir námskeiðið. Hlauparar þurfa sjálfir að skrá sig í Laugavegshlaupið (eða það hlaup sem áætlað er að taka þátt í) og greiða skráningargjaldið í þau sérstaklega. Vinsamlegast greiðið 15.000 kr staðfestingargjald þegar þið skráið ykkur á námskeiðið, inn á reikning 0544-26-35333 kt. 280257-3549. Þátttakendur á landsbyggðinni, sem ekki eiga möguleika á að sækja sameiginlegar æfingar, fá 20% afslátt.
Vinsamlegast hafið samband við Torfa H. Leifsson, torfi@hlaup.is, sími 845-1600 eða Sigurð P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is, sími 864-6766, ef þið hafið spurningar. Skráið ykkur með því að smella á eftirfarandi tengil:
Skráning á námskeið fyrir þátttöku í Laugavegshlaupinu 2023.
Ummæli nokkurra þeirra sem hafa sótt Laugavegsnámskeiðið í gegnum árin:
Í byrjun árs 2016 var öll fjölskyldan skráð á Laugavegsnámskeiðið hjá Sigga P. og Torfa. Eiginmaðurinn og dóttirin höfðu áður hlaupið Laugaveginn, en fullkomna skyldi gjörninginn með því að koma mömmu gömlu með. Skeptísk og tortryggin mætti ég á æfingu og átti von á því að vera hætt innan viku. Ég hætti þó fljótlega við það þegar ég áttaði mig á því að hver og einn fékk einstaklingsmiðaða æfingaáætlun, sem hentaði þörfum hvers og eins. Það kom sér vel fyrir mig, enda ekki hlaupið að gagni í mörg ár. Árangurinn skilaði sér heldur betur, en undirrituð komst alla leið innan tímamarka og eiginmaðurinn og dóttirin bættu sig verulega frá fyrri tímum.
Hlaupanámskeiðið hentar hlaupurum af mismunandi getu og vel er fylgst með hvernig gengur. Markmið einstaklinga verða alltaf misjöfn og þeir félagar hafa einstakt lag á að láta missprettharða einstaklinga hlaupa saman á æfingu. Að hlaupa Laugaveginn er háleitt markmið, en algjörlega yfirstíganlegt með réttri leiðsögn. Sjálf hefði ég aldrei lagt af stað, nema undir handleiðslu Sigga og Torfa. Svei mér þá, ef ég fer ekki bara aftur í ár!
Kristín Heimisdóttir (Bjarni Elvar Pjetursson, Gréta Rut Bjarnadóttir), Laugavegshlaupið 2016
"Ég hef tvisvar hlaupið Laugaveginn og undirbjó mig í bæði skiptin með því að fara á Laugavegsnámskeið hjá Sigurði og Torfa.
Námskeiðið er mjög vel útfært og frábært að fá æfingaáætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Félagsskapurinn og andlegi stuðningurinn á undirbúningstímanum var mjög góður og gerði það að verkum að árangurinn í hlaupinu og upplifunin var enn ánægjulegri en ella. Einnig var frábært að fá tímasetta áætlunin fyrir hlaupið sjálft. Ég mun fara á námskeiðið í þriðja sinn í ár til að undirbúa mig fyrir Laugaveginn."
Hinrik Pálsson, Laugavegur 2013 og 2014.
"Ég skráði mig á Laugavegsnámskeiðið 2013 hjá Sigga og Torfa því mig langaði að undirbúa mig vel, líkamlega og andlega, fyrir fyrsta Laugavegshlaupið mitt. Námskeiðið reyndist framar öllum vonum, ég fékk einstaklings prógramm, samæfingar, frábæra leiðsögn og síðast en ekki síst frábæran félgasskap. Í hópnum voru einstaklingar með mismunandi markmið og væntingar en allir gátu samt sem áður fundið einhvern til að vera "samferða" á æfingum og í keppnum. Mér líkaði námskeiðið svo vel að ég skráði mig aftur 2014 og dró þá manninn minn með og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Við ætlum að bæði að skrá okkur aftur 2015 :)