Arnarneshlaupið er hluti af Hlaupahátíð á Vestfjörðum. Hlaupið er götuhlaup þar sem hlaupið er leið frá Súðavík til Ísafjarðar, 10 km eða 21,1 km leið löglega mældar leiðir.
Upplýsingar um Arnarneshlaupið
Keppendum er bent á að kynna sér vel hlaupaleiðina, hún er vel merkt með gulum merkingum á götunni og athugið að það er talið niður í hlaupinu. Brautarverðir verða á þeim stöðum sem gatnamót eru, leiðbeina keppendum og stoppa umferð.
Drykkjarstöðvar eru 4 fyrir 21,1 km og 2 fyrir 10 km hlaupið. Á stöðvunum er boðið upp á orkudrykk frá Bætiefnabúllunni (Isotonic) og vatn. Drykkjarstöðvarnar eru við ca 5, 10, 14 og 18 í 21,1 km og við ca 3 og 7 km í 10 km hlaupinu. Drykkir og veitingar verða fyrir þátttakendur í markinu.
Arnarneshlaupið er löglega mælt af starfsmönnum FRÍ. Staðfest Íslandsmet fæst í 21,1 km en þar sem hæðarmunur í starti og marki er of mikill í 10 km fæst tíminn ekki staðfestur sem Íslandsmet. Keppendum er bent á að halda sig alltaf hægra megin í brautinni eins og kostur er þar sem mælingin á leiðinni miðast við það. Ef keppendur eru að sviga milli akreina getur vegalengdin í hlaupinu orðið röng.
Aldurstakmörk eru í Arnarneshlaupinu skv reglum frá Frjálsíþróttasambandi Íslands en í 10 km hlaupinu er 12 ára og eldri heimilt að taka þátt og í 21,1 km er 15 ára og eldri heimilt að taka þátt
Skráning
21,1 km
Startað er frá íþróttahúsinu í Súðavík. Hlaupið verður sem leið liggur til Ísafjörðar og endað á Silfurtorgi. Brautarverðir verða við öll gatnamót. Á einum stað í hlaupinu er grindahlið og er keppendum bent á að fara varlega þegar þeir hlaupa þar yfir. Hliðið er snemma í hlaupinu, rétt eftir að farið er út úr Súðavík.
10 km
Startið í 10 km er á Arnarnesi og hlaupið sem leið liggur að Silfurtorgi á Ísafirði. Brautarverðir verða við öll gatnamót.
Eftir hlaupið verður keppendum boðið í sund og mun verðlaunaafhending fara fram á sundlaugarsvæðinu. Þar verður boðið upp á veitingar, ma. drykki frá Ölgerðinni, banana, súkkulaði og aðra orku.
Dagskrá hlaupahátíðarinnar á Vestfjörðum lítur í heild sinni þannig út:
Fimmtudagur 14. júlí
- Skálavíkurhlaup, 12 km og 19 km
- Skálavíkurhjólreiðar 19 km
- Verðlaunaafhending í sundlauginni í Bolungarvík
Föstudagur 15. júlí
- Sjósund 1500 m
- Sjósund 500 m
- Arnarneshlaup 21 km
- Arnarneshlaup 10 km
- Verðlaunaafhending á Silfurtorgi fyrir Arnarneshlaup
Laugardagur 16. júlí
- Fjallahjólreiðar (XCM) 55 km
- Skemmtihjólreiðar 8 km
- Skemmtiskokk á Þingeyri, 2 km og 4 km
- Útijóga, vöfflubakstur og fleira skemmtilegt við sundlaugina á Þingeyri
Sunnudagur 17. júlí
- Tvöföld Vesturgata 45 km
- Heil Vesturgata 24 km
- Hálf Vesturgata 10 km
Þríþrautin samanstendur af 500 m sjósundi, 55 km fjallahjólreiðum og 24 km Vesturgata.
Allar nánari upplýsingar um mæting, rástíma og rútuferðir er að finna inni á síðu hverrar greinar fyrir sig.
Nánari upplýsingar á vefsíðu hlaupahátíðarinnar.