Þátttökugjald

  • 4x4 km - Konulið14.000 kr
  • 4x4 km - Karlalið14.000 kr
  • 4x4 km - Blandað kvenna/karlalið14.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir4 km
  • Dagsetning1. september 2022

Boðhlaup BYKO er byggt á danskri fyrirmynd en þar er samskonar hlaup stærsti almenningsíþróttaviðburður í heimi þar sem yfir tvöhundruð þúsund þátttakendur eru skráðir til leiks. BYKO er lykilstuðningsaðili boðhlaupsins sem mun stimpla Kópavog inn sem einn af hlaupabæjum Íslands. Hlaupið fer fram þann 1. september í Kópavogsdal við Fífuna. Lögð er áhersla gleði, liðsvinnu og hlaupaánægju.

Tónlist, gleði og veitingar verða á meðan og eftir hlaupið

Boðhlaupið er viðburður fyrir fyrirtæki, samtök og vini sem vilja gera sér glaðan dag saman. Áhersla er lögð á gleði, vinskap, liðsvinnu og hlaupaánægju. Hlaupaleiðin er þægileg á fótinn og hringurinn 4 km langur þannig að allir geta tekið þátt. Rás- og endamark eru staðsett á sama stað sem myndar skemmtilegt andrúmsloft þar sem hægt er að hvetja liðið sitt áfram og njóta samverustundar með samstarfsfélögum og vinum.

Taktu daginn frá og vertu með í einum skemmtilegasta hlaupa- og hreyfiviðburði ársins í Kópavogsdal fimmtudaginn 1. september.

Tímasetningar og staðsetning

Hlaupið fer fram við Kópavogsvöll fimmtudagnn 1. september og allt nánasta umhverfi Blikasvæðisins verður miðpunktur Boðhlaups BYKO.

Vegalengd

Boðhlaupið fer þannig fram að hver liðsmaður hleypur 4 km hring, þ.e. allir í liðinu hlaup 4 km hvor fyrir sig en aðeins einn í einu. Þátttakendur hlaupa með boðhlaupskefli sem þarf að afhenda næsta hlaupara áður en hann leggur af stað sína 4 km. Hlaupaleiðin er falleg og þægileg á fótinn sem ætti að henta öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt.

Rás- og endamark í boðhlaupinu eru staðsett við Fífuna og er staðsetning þeirra á sama stað sem myndar skemmtilegt andrúmsloft þar sem hægt er að hvetja liðið sitt áfram og njóta samverustundar með samstarfsfélögum og vinum. Þrír flokkar eru í boði, flokkur karla, flokkur kvenna og blandaður flokkur.

  • 4x4 km karlaflokkur 14.000 kr (fjórir karla)
  • 4x4 km konuflokkur 14.000 kr (fjórar konur)
  • 4x4 km blandaður flokkur 14.000 kr (tvær konur og tveir karlar)

Skráning og þátttökugjöld

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá hér efst á síðunni. Skráningu lýkur þriðjudaginn 29. ágúst á miðnætti. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum. Þátttökugjald er 14.000 kr. á lið en fjórir hlauparar eru saman í liði.

Aðeins einn hlaupari er skráður fyrir liðinu og skráir hann sig sem fyrirliða liðsins og greiðir gjaldið. Hægt er að setja nafn liðsins í stað nafns hlaupara en kennitala í skráningu má vera kennitala hlaupara eða fyrirtækis.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir besta árangur liðs í karla-, kvenna- og blönduðum flokki. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir bestu stuðningssveitina og besta stemningsliðið.

Þjónusta

Tónlist, gleði og veitingar verða við Fífuna á meðan og eftir hlaup.

Skipuleggjandi og framkvæmdaraðili

Boðhlaup BYKO er skipulagt af Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) en sambandið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Markmið UMSK er að byggja upp skemmtilegan viðburð fyrir fyrirtæki landsins þar sem aðaláherslan er á hreyfingu og að fyrirtæki geti gert sér dagamun í sameiningu.

Framkvæmdastjóri UMSK: Valdimar Gunnarsson
Netfang: umsk@umsk.is
Sími: 514 4090 / 894 8503

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu hlaupsins: https://bodhlaup.is/


Myndband má nálgast hér: https://vimeo.com/696607173