Um hlaupið

  • Vegalengdir28 km
  • Dagsetning13. ágúst 2022
Sjá úrslit

5VH Trail Run (Fimmvörðuhálshlaup Náttúruhlaupa) verður haldið laugardaginn 13. ágúst. Hlaupið verður um Fimmvörðuháls, frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal, 28 km.

Tímasetning

Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 13. ágúst.

Verð og skráning

Skráning á vefsíðu hlaupsins.

Verð í hlaupið eru eftirfarandi:

  • 16.900 kr til 1. janúar 2022
  • 19.900 kr frá 1. janúar - 30. júní 2022
  • 22.900 kr eftir 30. júní 2022

Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt að gera nafnabreytingar til 30. júní 2022.

Meðlimir í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fá afsláttarkóða upp á 15% sem gildir á tvö fyrri tímabilin (til 30. júní). Enginn afsláttur er veittur eftir 30. júní. Ekki er hægt að fá afsláttinn eftir á hafi viðkomandi greitt fullt verð án þess að nýta kóðann.

Innifalið í skráningu

  • Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
  • Drykkjarstöðvar við Baldvinsskála (13 km), Strákagil (23 km) og Volcano Huts. Vatn, íþróttadrykkur og bananar.
  • Sturtu og klósettaðstaða að hlaupinu loknu
  • Langerma hettubolur (Aðalvík) frá 66° Norður
  • Trúss frá Skógum að Básum
  • Heilbrigðisstarfsfólk í Volcano Huts

Ekki innifalið í skráningu

Hvorki rútuferðir né matur að hlaupi loknu eru innifalin í skráningu. Sendur verður póstur á þátttakendur í júlí þar sem þeim gefst kostur á að panta eftirfarandi í forsölu:

Matur:

  • Kjöt og/eða grænmetissúpu-hlaðborð 2.700 kr.
  • Grillaður ostborgari 2.200 kr.
  • Grillaður grænmetisborgari 2.200 kr.

Ferðir:

  • Ferð Reykjavík - Skógar; Volcano Huts - Reykjavík 14.000
  • Ferð Skógar - Volcano Huts 8.000 kr.
  • Ferð Volcano Huts - Skógar 8.000 kr.
  • Ferð Volcano Huts - Krossá 1.500 kr.

Hlaupaleið og vegalengd

Hlaupið er 28 km og byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal.

Tímamörk

7 klst. Klára þarf hlaupið fyrir kl. 16:00

Hámarksfjöldi

300 manns.

Verðlaun

Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokkum.

Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins og Facebook síða hlaupsins.

Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running (netfang: 5vh@natturuhlaup.is)