Þátttökugjald

  • 14 km6.500 kr
  • 17,5 km6.500 kr
  • 22 km6.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir14 km, 17,5 km, 22 km
  • Dagsetning6. júní 2022
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Hvítasunnuhlaup Skokkhóps Hauka og Brooks fer fram árið 2022 í tíunda sinn á annan dag Hvítasunnu, mánudaginn 6. júní kl. 10:00.

Hvítasunnuhlaup Hauka og Brooks er glæsilegt utanvegahlaup um fallegt uppland Hafnarfjarðar. Hlaupið byrjar og endar á Ásvöllum í Hafnarfirði, og er val um þrjár hlaupaleiðir 14 km, 17,5 km og 22 km. Hlaupið hefur verið skipulagt og unnið í sjálfboðavinnu af félögum í Skokkhópi Hauka sem telur um 100 félaga. Mikil samstaða er um að gera hlaupið sem glæsilegast og hefur hlaupið unnið til verðlauna meðal bestu utanvegahlaupa á landinu. Á þessum 10 árum hefur hlaupið vaxið og dafnað og verið uppselt undanfarin ár. Hlaupið er viðurkennt af ITRA og gefur 22 km hlaupaleiðin 1 punkt og allar vegalengdir munu væntanlega gefa ITRA stig.

Skokkhópur Hauka hefur í tengslum við Hlaupið styrkt Skógrækt Hafnarfjarðar og Íþróttafélag Hauka myndarlega og verður einnig svo í ár. Ákveðið hefur verið að veita ekki verðlaunapeninga nema fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki í hverri vegalengd og munu þess í stað 500 krónur af skráningargjaldi hvers hlaupara renna til íþróttafélagsins Hauka.

Skipulagning hlaupsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár en með þeim fyrirvara að hlauparar þurfa að vera viðbúnir því að breytingar geti átt sér stað eftir því hvernig málin þróast vegna Covid faraldursins.

Hvítasunnuhlaupið er utanvegahlaup og því mikilvægt að fara varlega á misjöfnu undirlagi.  Hlauparar taka þátt í Hvítasunnuhlaupinu á eigin ábyrgð.  Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum á meðan á þátttöku í hlaupinu stendur.  Með skráningu í hlaupið og því að sækja rásnúmer staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.

Hlauparar eru hvattir til að skoða myndir og myndbönd úr Hvítasunnuhlaupinu sem gefur glögga mynd af stemmningunni í hlaupinu.

Nokkur vídeó frá 2016

Nokkur vídeó frá 2018

Vegalengdir og hlaupaleið
  • 22 km (brautin viðurkennt af ITRA) Sjá ítarlegt kort neðst á þessari síðu og hæðarprófíl hér fyrir neðan
  • 17,5 km
  • 14 km

Hlaupið er um stórkostlegar náttúruperlur í næsta nágrenni Hafnarfjarðar s.s. Ástjörn, Hvaleyrarvatn, Stórhöfða og Höfðaskóg.

Google kort af leiðinni er neðst á þessari síðu.

GPS af hlaupaleið.

22 km leiðin
Hlaupið er frá Ásvöllum, hálfan hring í kringum Ástjörnina, upp á Vatnshlíðina, niður að Hvaleyrarvatni og réttsælis meðfram vatninu. Þaðan á malarveg að Stórhöfðastíg, eftir stígnum í kringum Stórhöfðann og síðan upp á höfðann, niður af höfðanum hinumegin og inn Kjóadalinn. Þaðan er hlaupið örstutt eftir malarvegi og inn á stíg til vinstri sem liggur nánast að skátaheimilinu við Hvaleyrarvatn. Þar er haldið eftir malarvegi til hægri tæplega 5 km hring eða þar til komið er inn í skógræktina. Inn í skógræktinni er hlaupinn smá hringur og komið út nálægt Skátaheimili en þá er haldið að Hvaleyrarvatni. Leiðin liggur þá eftir skógarstígum upp í hlíðinni og aftur niður að vatni. Nú er farið rangsælis meðfram vatninu u.þ.b 600m þar til beygt er upp Vatnshlíðina. Farið er yfir Vatnshlíðina og til baka að Ástjörn, til vinstri í átt að Ásvöllum eftir malarstíg, yfir litla göngubrú, kringum íþróttasvæðið rangsælis og komið í mark á Ásvöllum á sama stað og var ræst.

17 km leiðin
Sama leið og 22 km en 17 km hlauparar sleppa 5 km hringnum við skátaheimilið.

14 km leiðin
Sama leið og 22 km en 14 km hlauparar sleppa 5 km hringnum við skátaheimilið og fara ekki upp á Stórhöfða.

Skráning og þátttökugjald

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og er hægt að skrá sig í hlaupið þar til kl. 23:59 miðvikudaginn 1. júní.

Skráningargjaldið er 5.500 kr í forskráningu til miðnættis 30. apríl, en hækkar frá og með 1. maí í 6.500.

Að hámarki verða skráðir 500 hlauparar og lokar skráning þegar því er náð. Hlauparar sem þurfa að hætta við skráningu er veitt full endurgreiðsla til 29. maí. Ekki er endurgreitt eftir þann tíma.

Afhending gagna

Afhending númera verður hjá Fætur Toga Höfðabakka á fimmtudag 15-18 og föstudag 12-18. Góð tilboð fyrir hlaupara i búðinni og hægt að skrá sig á staðnum.

Einnig verður hægt að sækja númer og skrá sig á hlaupdag milli 8 og 9 á Ásvöllum.

Aldurstakmark

Hlauparar verða að vera 16 ára á árinu til að mega taka þátt.

Tímataka

Tímataka með flögu.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, í kvenna- og karlaflokki, í hverri vegalengd, 14 km, 17,5 km og 22 km. Þá verða fjölmörg glæsileg útdráttarverðlaun.

Þjónusta

ATHUGIÐ að upplýsingar um veitta þjónustu hér fyrir neðan eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Boðið verður upp á vatn og orkudrykki á þremur drykkjarstöðvum. Hlauparar í 22 km hlaupi mega EINUNGIS nota drykkjarstöð númer 2, en ekki aðrar drykkjarstöðvar. Þetta er gert vegna ITRA reglna.

Ekki verður boðið upp á pappa- eða plastmál á drykkjarstöðvum, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glas til að geta fengið drykk á drykkjarstöðvum. Ekkert glas, enginn drykkur.

Eftir hlaup verður boðið upp á hressingu. Frítt er í sund fyrir hlaupara í Ásvallalaug.

Nánari upplýsingar

Facebooksíða hlaupsins: Hvítasunnuhlaup Hauka og Brooks
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda póst á hvitasunnuhlauphauka@gmail.com