Um hlaupið

  • Vegalengdir14 km
  • Dagsetning26. desember 2022

Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS) stendur fyrir kirkjuhlaupi á annan í jólum líkt og gert hefur verið frá árinu 2010. Þátttaka í hlaupið hefur verið gríðarlega góð síðustu ár enda um einstakan viðburð að ræða líkt og sjá má af frétt mbl.is um hlaupið frá árinu 2018.

Tímasetning

Lagt verður af stað frá Seltjarnarneskirkju kl 10:00.

Skráning

Engin skráning á sér stað fyrir hlaupið. Nægilegt er að mæta bara með bros á vör.

Hlaupaleið

Stoppað er stuttlega við eftirfarandi kirkjur á hlaupaleiðinni og hópurinn þéttur:

  • Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
  • Landakotskirkja
  • Dómkirkjan
  • Fríkirkjan
  • Kirkja aðventista
  • Hallgrímskirkja
  • Háteigskirkja
  • Kirkja óháða safnaðarins
  • Fossvogskapella
  • Friðrikskapella Hlíðarenda
  • Háskólakapellan
  • Neskirkja
  • Seltjarnarneskirkja

Vegalengd

Hlaupaleiðin er rúmlega 14 km ef öll leiðin er farin. Auðvelt er að stytta leiðina fyrir þá sem það kjósa t.d. með því að fara beint frá Háteigskirkju að Friðrikskapellu (10 km) og þaðan áfram sem leið liggur að Háskólakapellu.

Þar sem ekki er um tímamælingu að ræða eru þátttakendur hvattir til að hlaupa á sínum hraða og njóta hlaupsins og hátíðanna. Að loknu hlaupi býður Seltjarnarneskirkja hlaupurum upp á heitt súkkulaði og smákökur.