Þátttökugjald

  • 3 km0 kr
  • 10 km4.900 kr
  • 21 km6.900 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 10 km, 21 km
  • Dagsetning21. maí 2022
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Mýrdalshlaupið,  skemmtilegt og krefjandi utanvegahlaup í mikilli náttúrufegurð, verður haldið í níunda sinn laugardaginn 21. maí 2022.

Vegalengdir

Boðið verður upp á þrjár vegalengdir; 21 km með 1000 m hækkun og tæpa 10 km með 400 m hækkun. Þá er einnig boðið upp á 3 km skemmtiskokk.

  • 21 km - 1000 hæðarmetrar - Ræst kl. 12:00 - Viðurkennd ITRA braut sem gefur 1 punkt
  • 10 km - 400 hæðarmetrar - Ræst kl. 12:30
  • 3 km skemmtiskokk - Ræst kl. 13:00

MYR2020 408
Hlaupið upp á Reynisfjalli

Skráning, þátttökugjald og afhending gagna

Skráning fer fram á hlaup.is og hefst föstudaginn 28. janúar 2022 kl. 13:00. Lokað hefur verið fyrir skráningu vegna hámarksfjölda.

  • 21 km - Þátttökugjald er 6.900 kr - 16 ára aldurstakmark
  • 10 km - Þátttökugjald er 4.900 kr - 16 ára aldurstakmark
  • 3 km skemmtiskokk - Frítt - Ekkert aldurstakmark

Hámarksfjöldi þátttakenda er 300 manns í 21 km og 10 km samtals.

Ekki verður biðlisti í hlaupið, ekki verður hægt að fá endurgreitt, en leyfilegt er að gera nafnabreytingar þar til viku fyrir hlaup.

Afhending keppnisgagna fer fram á höfuðborgarsvæðinu í vikunni fyrir hlaup. Þeir hlauparar sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu geta sótt gögnin á hlaupdegi í Vík. Nánar auglýst síðar. Innifalið í þátttökugjaldi er brautarvarsla, tímataka með flögu og hressing eftir hlaup.

Staðsetning og hlaupaleið

Keppendur mæti við Víkurskóla í Vík í Mýrdal um 30 mínútum fyrir ræsingu og hópurinn gengur/skokkar saman niður í Víkurfjöru þar sem hlaupið verður ræst. Búast má við 5-10 mínútna göngu.

10 km leiðin (tæplega): Hlaupið er ræst í Víkurfjöru. Hlaupið er í átt að Reynisdröngum eftir sandinum u.þ.b 600 m. Beygt er upp úr fjörunni upp við Reynisfjall og hlaupið meðfram fjallinu. Þá er komið inn á Víkurbraut sem er malbikaður vegur. Hlaupið er eftir Víkurbraut þar til komið er að Bakkaskarði, þar er beygt til vinstri upp hlíðina. Leiðin liggur síðan eftir malarvegi upp á Reynisfjall. Þegar komið er yfir pípuhliðið á brún Reynisfjalls er beygt til vinstri inn á þröngan stíg sem liggur eftir allri fjallsbrúninni. Útsýnið yfir Vík og Reynisdranga er stórkostlegt á þessum kafla leiðarinnar. Drykkjarstöð verður fremst á fjallinu eftir u.þ.b. 4,5 km og síðan er hlaupið áfram eftir vesturbrún fjallsins. Þegar komið er niður Reynisfjall vestan megin er beygt til hægri og farið eftir gömlum malarvegi aftur yfir fjallið. Þaðan er síðan hlaupin sama leið aftur niður í þorpið. Markið er við íþróttamiðstöðina.

10 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/128844

21 km leiðin: Lengra hlaupið er á sömu braut og styttra hlaupið í byrjun en beygir af leið eftir u.þ.b. 7 km. Þá er hlaupið inn eftir Reynisfjalli í norður í stað þess að fara niður í þorpið eins og stutta hlaupið gerir. Þessi kafli er ýmist kindagötur eða melar og móar með engum stíg á köflum. Síðan er farið yfir þjóðveginn og hlaupið eftir gömlum vegi upp að Höttu. Þar er talsverð hækkun og hlaupið utan stíga síðasta kílómeterinn upp á topp á Höttu. Þaðan er síðan hlaupið eftir gönguleið niður í Víkurþorp. Frá toppi Höttu og niður í Víkurþorp eru brattir kaflar en flatir inn á milli og er endað við íþróttavöllinn eins og styttra hlaupið. Undirlagið í hlaupinu er u.þ.b. 80% á stígum og slóðum, 18% utan stíga og 2% á malbiki. Þessi hlaupaleið er sem áður sagði viðurkennd af ITRA og gefur 1 punkt og ITRA stig. Hér er hlekkur inn á ITRA síðu hlaupsins. Hlaupið er einnig UTMB qualifying race og getur því stuðlað að þátttökurétti í UTMB hlaupaseríunni.

Leiðin verður vel merkt og brautarvarsla á leiðinni. Tvær drykkjarstöðvar verða í langa hlaupinu og ein í styttra.

Vakin er athygli á því að 21 km hlaupið er krefjandi og einungis fyrir þá hlaupara sem hafa farið í utanvegahlaup áður og teljast nokkuð vanir að hlaupa utanvega. Um tæknilega braut er að ræða og nokkuð brött niðurhlaup á köflum.

21 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/120682

Tímamörk

Tímamörk verða í 21 km hlaupinu nú í fyrsta skipti. Eru þau sett með öryggi hlauparans og skipulag brautarvörslu í huga. Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir frá drykkjarstöð nr. 2 (u.þ.b 13 km og 620 m uppsöfnuð hækkun frá ræsingu) eftir 2 klukkutíma og 30 mínútur frá ræsingu. Ef hlaupari nær ekki þeim tímatakmörkum telst hann hafa lokið keppni í hlaupinu og verður boðið far niður í Víkurþorp. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti.

Flokkar

Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Einnig verða útdráttarverðlaun.

Nánari upplýsingar

Vinsamlegast hafið samband við Guðna Pál Pálsson: gudni.palsson@efla.is

Kort af hlaupaleið
Myrdalshlaupkort10kmleid
Kort af 10 km hlaupaleið
Myrdalshlaupkort21kmleid
Kort af 21 km hlaupaleið