Skúli Craft Bar ætlar að standa fyrir hressandi skemmtihlaupi, laugardaginn 2. júlí kl. 11:00.
Hlaupaleið og tímataka
Hlaupaleiðin er 10 km skemmtileg leið, sjá kort neðst á þessari síðu. Rásmark og endastöð verður við Kirkjustræti og er mæting hjá Skúla Craft Bar, Aðalstræti 9.
Hlaupið er ræst af stað klukkan 11:00.
Tímataka verður með flögum og verður verðlaunaafhending fyrir efstu 3 sætin í karla og kvennaflokki. Skráðir keppendur fá frían bjór eftir hlaupið ásamt því að fá fallegt bjórglas.
Skráning og afhending gagna
Skráning í hlaupið er hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og verður skráning opin til kl. 24 föstudaginn 1. júlí.
Skráningargjald er 4.000 kr og er 20 ára aldurstakmark í hlaupið.
Afhending gagna er á Skúla Craft Bar föstudaginn 1. júli frá 12-17 og svo laugardaginn 2. júli frá klukkan 10.
Nánari upplýsingar
Björn Árnason, Skúli Craft Bar, netfang: bjorn@skulicraftbar.is