Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 26. júní n.k og er þetta er í ellefta skiptið sem hlaupið er haldið. Hlaupið hefur fengið mjög góðar viðtökur undanfarin tíu ár og heppnast mjög vel. Ræst verður frá Arnarstapa kl. 12:00. Boðið verður upp á rútuferð frá Ólafsvík til Arnarstapa fyrir þá sem vilja.
- Í ár verður fjöldi þátttakenda takmarkaður við 300 manns.
- Skráningu lýkur kl. 24:00 mánudaginn 21. júní.
- Þar sem upphafsstaður hlaupsins er rúmgóður verða allir ræstir í einu.
- Mælst er til að hröðustu hlaupararnir verði fyrstir í ræsingu.
- Drykkjastöðvarnar verða eins og áður 4 talsins og mun Björgunarsveitin Lífsbjörg sjá um þær. Þar verður boðið upp á vatn og orkudrykk. Umhverfisvæn einnota pappaglös verða í boði sem hent er svo í ruslafötu. En öllum er frjálst að vera með sín drykkjarílát.
- Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði
- Allir þátttakendur fá smá glaðning í poka að hlaupi loknu.
Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.
Staður og tímasetning
Hlaupið verður frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Ræst verður klukkan 12:00 frá veitingastaðnum Arnarbæ á Arnarstapa.
Rúta verður fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá Átthagastofunni í Ólafsvík og kostar 2.500 kr.
Vegalengd
22 km.
Skráningargjald
Þátttökugjald í forskráningu 7.000 kr. Hægt er að afskrá sig og fá endurgreiðslu þar til skráningu lýkur.
Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á síðunni. Opið er fyrir skráningu til kl. 24:00 mánudaginn 21. júní. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum.
Hlaupaleiðin
Hlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700metra hæð. Síðan tekur hlaupaleiðin að smá lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa kjást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, en fer það eftir því hvað veturinn var snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Fjórar drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um. Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar hafa kosta á að skilja eftir aukadót og fatnað sem verður afhendur í Átthagastofu í Ólafsvík. Einnig tekur Björgunarsveitin við fatnaði við drykkjarstöðvar á hlaupaleiðinni og verður afhendur í Átthagastofu að hlaupi loknu.
Flokkaskipting
- Karlar 70 ára og eldri
- Konur 70 ára og eldri
- Karlar 60 - 69 ára
- Konur 60 - 69 ára
- Karlar 50 - 59 ára
- Konur 50 - 59 ára
- Karlar 40 - 49 ára
- Konur 40 - 49 ára
- Karlar 39 ára og yngri
- Konur 39 ára og yngri
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímana í hverjum flokki og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.
Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát í skemmtilegu hlaupi.
Nánari upplýsingar
Ingunn Ýr Angantýsdóttir s:858 7670 og netfangið ingunnyra@gmail.com
Sigrún Ólafsdóttir s:8942446 og netfangið sigrun@olafsdottir.is