Þátttökugjald

  • 2 km1.000 kr
  • 10 km - 14 ára og yngri1.500 kr
  • 10 km - 15 ára og eldri3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 10 km
  • Dagsetning29. maí 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Stjörnuhlaupið fer nú fram með breyttu sniði síðdegis laugardaginn 29. maí. Boðið verður upp á tvær gleðileiðir, 10 km hring og 2 km hring en hann er sérstaklega hugsaður fyrir yngri kynslóðina.

10 km hlaupið verður ræst kl. 16:00. Upphaf og endastöð hlaupsins er á Garðatorgi. Hlaupaleiðin er ný og að langmestu leyti á stígum Garðabæjar en hún hlykkjast skemmtilega um nokkur hverfi bæjarins. 2 km hlaupið verður ræst aðeins seinna.

Hlauparar geta gert ráð fyrir veglegu fjöri í brautinni þar sem tónaflóð mun dynja á þeim svo til í hverju skrefi.

Við tókum viðtal við forsvarsmenn hlaupsins og heyrðum hvað þeir höfðu að segja um allar þær nýjungar sem verið er að kynna í nýju Stjörnuhlaupi.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Skráning er opin til kl. 24 föstudagskvöldið 28. maí.

Skráningargögn eru afhent á Garðatorgi á milli 13:00 og 15:00 á hlaupdegi. Einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið á þeim tíma. 

Skráningargjald í 10 km fjörið:

  • 3.000 kr. 15 ára og eldri
  • 1.500 kr. 14 ára og yngri
  • Fjölskylduskráning (pakki) – 7.000 kr.  Notið kóðann STJORNU-FJOLSK í reitinn Afsláttarkóði þegar þið skráið ALLA fjölskylduna í einu.

Skráningargjald í 2 km gleðina er 1.000 kr.

Keppnisgögn verða afhent í íþróttamiðstöðinni Ásgarði daginn fyrir hlaup, þ.e föstudaginn 28. maí á milli 16:00 og 19:00.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um hlaupið verður að finna á vef hlaupsins: stjornuhlaup.is