Um hlaupið

  • Vegalengdir16,5 km, 48 km
  • Dagsetning13. ágúst 2022
Sjá úrslit

Trékyllisheiðin er utanvegahlaup sem fer fram á Ströndum í annað sinn laugardaginn 13. ágúst 2022. Tvær vegalengdir eru í boði, Trékyllisheiðin ultra 48 km (um 1.200 m hækkun) og Trékyllisheiðin mini 16,5 km (um 250 m hækkun).

Tímasetning

Laugardagur 13. ágúst 2022

Staðsetning

Lengra hlaupið hefst við félagsheimilið í Árnesi í Trékyllisvík og það styttra á Bjarnarfjarðarhálsi milli Steingrímsfjarðar og Bjarnarfjarðar. Skíðafélag Strandamanna stendur að hlaupinu, en Strandagöngur félagsins eru vinsæll hluti af Íslandsgöngu Skíðasambands Íslands. Bækistöðvar félagsins eru í nýlegum skíðaskála á Brandsholti í Selárdal inn af botni Steingrímsfjarðar, u.þ.b. 16 km norðvestan við Hólmavík. Sætaferðir verða frá skíðaskálanum að rásmörkum beggja hlaupanna og bæði hlaupin enda við skíðaskálann.

Trékyllisheiðin

Trékyllisheiði er fjallvegur á milli Steingrímsfjarðar og Trékyllisvíkur á Ströndum. Leiðin yfir heiðina var  greiðasta leiðin á milli þessara byggðarlaga áður en vegur var lagður meðfram sjónum norðan Bjarnarfjarðar. Heiðarleiðin er mun styttri en bílvegurinn, en liggur víðast í um 400 m hæð og er afar hrjóstrug, gróðursnauð og illviðrasöm á vetrum. Heiðin verður því sjaldan fyrir valinu sem ferðaleið ef aðrar hlýlegri standa til boða. Jeppaslóði liggur yfir heiðina, en hann er mjög seinfarinn, nema helst þegar harðfenni er yfir.

Á bls. 139 í Fjallvegahlaupabók Stefáns Gíslasonar (Salka 2017) er að finna eftirfarandi lýsingu:

Trékyllisheiði hefur hvorki verið mönnum blíð né auðveld yfirferðar síðustu aldirnar. Til eru margar hrakfarasögur af heiðinni og Jakob Thorarensen (1886-1972) skáld frá Gjögri komst svo að orði að þar væri „jafn þurlegt og í dómssal, eins þögult og í gröf“. … Þórbergur Þórðarson var einn þeirra sem átti leið um Trékyllisheiði á sínum tíma. Hann gekk þarna yfir mánudaginn 30. september 1912 í framhjágöngunni miklu, lagði á heiðina frá Kjós kl. 10 árdegis og var kominn að Bólstað kl. 15:40. Þar drakk hann kaffi.

Hlaupaleiðir

Lengra hlaupið (48 km) hefst við félagsheimilið í Árnesi í Trékyllisvík. Þaðan er hlaupið eftir malarvegi (Þjóðvegi 643, Strandavegi) til norðvesturs, um 3 km leið. Þegar komið er fram hjá bænum Melum er beygt til vinstri inn á jeppaveg (Ófeigsfjarðarveg) sem liggur yfir Eyrarháls áleiðis í Ingólfsfjörð. Um það bil sem komið er upp á háhálsinn (um 2,3 km frá Strandavegi, um 200 m hækkun) er beygt til vinstri inn á torfæran slóða sem liggur til að byrja með í suður og suðvestur inn á Trékyllisheiði. Hlaupið er fyrir norðan fjallið Glissu og á þeim kafla fer leiðin hæst, eða í rúmlega 500 m.y.s. Eftir 13,2 km hlaup er komið á hæð norðvestan við Glissu og þar er fyrsta drykkjarstöðin á leiðinni.

Eftir u.þ.b. 18 km er tekin vinstri beygja vestan við Reykjarfjarðarvatn og hlaupið suður með Búrfelli austanverðu nálægt brúnum inn af Reykjarfirði, m.a. yfir vatnslitlar ár sem þar eru (Mjóadalsá, Breiðadalsá og Óveiðisá). Eftir þetta liggur leiðin áfram til suðurs yfir hina eiginlegu Trékyllisheiði, þar sem jeppaslóðum er fylgt lengst af. Sunnantil á heiðinni, eftir u.þ.b. 34 km, liggur leiðin yfir Goðdalsá sem getur verið vatnsmikil í leysingum og í vætutíð. Vakt verður við ána til að tryggja að allir komist klakklaust yfir. Um 6 km sunnar liggur leiðin fram hjá vegamótum. Þangað liggur jeppaslóði af Bjarnarfjarðarhálsi, þaðan sem keppendur í styttri vegalengdinni koma inn á aðalleiðina. Eftir það hallar vötnum mjög til Steingrímsfjarðar. Komið er niður í Selárdal skammt frá eyðibýlinu Bólstað, vaðið yfir Selá (með aðstoð eftir þörfum) og endaspretturinn tekinn inn dalinn að skíðaskálunum á Brandsholti, þar sem hlaupið endar.

Kort af leiðinni er hér neðst á síðunni og á kortavefnum Tracedetrail.

Hlaupið er viðurkennt af ITRA (International Trail Running Association) og gefur 2 ITRA-punkta.

Styttra hlaupið (16,5 km) hefst í u.þ.b. 200 m hæð á þjóðveginum á Bjarnarfjarðarhálsi við norðanverðan Steingrímsfjörð, u.þ.b. 2 km ofan við bæinn Bassastaði. Þaðan liggur leiðin eftir jeppaslóða inn á sunnanverða Trékyllisheiði. Eftir 8,5 km er komið inn á hlaupaleiðina norðan úr Trékyllisvík, (sjá leiðarlýsingu lengra hlaupsins). Þar er beygt til suðurs og hlaupin sama leið og í lengra hlaupinu, niður í Selárdal og að skíðaskálanum þar sem hlaupið endar.

Kort af leiðinni er hér neðst á síðunni og á kortavefnum Tracedetrail.

Hlaupið er viðurkennt af ITRA.

Sætaferðir

Boðið er upp á sætaferðir að morgni hlaupadags frá endamarkinu í Selárdal að rásmörkum beggja hlaupanna. Fargjaldið til Trékyllisvíkur er 7.000 kr/mann en 2.000 kr/mann að rásmarki styttra hlaupsins á Bjarnarfjarðarhálsi. Um fargjöld gilda sömu endurgreiðsluskilmálar og með þátttökugjöld, (sjá neðar). Þeir sem afþakka sætaferðina við skráningu geta eftir sem áður pantað far með því að senda tölvupóst á allaoskars@gmail.com í síðasta lagi 31. júlí 2022. Ekki er þó hægt að tryggja að nægt sætaframboð verði á þeim tíma.

Dagskrá hlaupadags
  • Kl. 07:30              Rútuferð úr Selárdal norður í Trékyllisvík
  • Kl. 10:00              Start 48 km við Félagsheimilið í Árnesi
  • Kl. 12:15              Rútuferð úr Selárdal upp á Bjarnarfjarðarháls
  • Kl. 13:00              Start 16,5 km á Bjarnarfjarðarhálsi
  • Kl. 13:30              Von á fyrstu keppendum í mark
  • Kl. 15:30              Verðlaunaafhending í Selárdal (eða þegar þrjú fyrstu eru komin í mark)
  • Kl. 18:00              Marki lokað

Skráning og verð

Skráning fer fram á https://netskraning.is/trekyllisheidin/.

Þátttökugjald er 13.900 kr. í lengra hlaupið og 6.900 kr. í styttra hlaupið. Þeim sem skrá sig fyrir árslok 2021 bjóðast sérstök vildarkjör (11.900 kr og 5.900 kr). Frá og með 1. júlí 2022 hækka gjöldin í 15.900 kr og 7.900 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Tímataka og númer
  • Brautar- og öryggisgæsla
  • Drykkir og næring á drykkjarstöðvum og í marki
  • Salernisaðstaða við rásmark og í marki
  • Flutningur á farangri frá rásmarki að endamarki
  • Verðlaun fyrir 3 efstu karla og konur

Afhending gagna

Hlaupagögn verða afhent í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík föstudaginn 12. ágúst kl. 18:00-21:00. Mikilvægt er að sem flestir sæki gögnin sín þá. Gögn sem ekki verða sótt á föstudeginum verða afhent í rútum á leið að rásmarki og við rásmark.

Tímataka

Tímataka verður með flögum (https://timataka.net).

Drykkjarstöðvar

Þrjár drykkjarstöðvar verða á lengri leiðinni og ein á þeirri styttri. Auk þess verður boðið upp á hressingu við endamark. Drykkjarstöðvar á lengri leiðinni verða norðvestan við fjallið Glissu (eftir um 13 km), við Búrfellsvatn (eftir um 26 km) og við vegamótin inn af Bjarnarfjarðarhálsi (eftir um 40 km). Sú drykkjarstöð þjónar jafnframt styttri leiðinni, en þar verða 8,5 km búnir af henni.

Á drykkjarstöðvunum verður a.m.k. boðið upp á vatn og orkudrykk. Engin pappa- eða plastmál verða þar til staðar, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glös til að geta fengið drykki.

Brautarvarsla og merkingar

Leiðin er að mestu leyti auðrötuð, þar sem hlaupið er eftir jeppaslóðum og troðnum stígum. Merkingum verður bætt við þar sem vafi getur leikið á hvert halda skuli. Einnig verður brautarvarsla á mikilvægustu stöðum, svo sem við vegamót norðan við Mela, við vegamót á Eyrarhálsi, við afleggjara inn af Bjarnarfjarðarhálsi, í brúninni ofan við Bólstað og á Geirmundarstaðavegi. Þá verður aðstoðarfólk til taks við vöðin á Goðdalsá og Selá, þar sem báðar eiga það til að vera nokkuð vatnsmiklar.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum.

Skilmálar

Þátttakendur taka þátt í hlaupinu á eigin ábyrgð og eiga ekki kröfurétt á framkvæmdaaðila hlaupsins vegna atburða sem verða í tengslum við hlaupið. Skráður þátttakandi er ábyrgur fyrir hlaupanúmeri og er óheimilt að láta það öðrum í té til þátttöku í hlaupinu. Sá sem hleypur með númer sem ekki er skráð á hann af mótshaldara er ekki gildur þátttakandi.

Hægt er að fá 50% af þátttökugjaldinu endurgreitt fram til 1. júlí 2022 með því að senda póst á allaoskars@gmail.com. Ef mótshaldari þarf að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna náttúruhamfara, veðurs, heimsfaraldurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna, verða 50% þátttökugjaldsins endurgreidd. Óska má eftir nafnabreytingu með því að senda póst á allaoskars@gmail.com.

Þátttakendum ber að sýna náttúrunni virðingu og ekki er heimilt að henda neinu rusli á leiðinni, nema í þar til gerð ílát á drykkjarstöðvum. Sýna ber öðrum þátttakendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni og hlýða fyrirmælum starfsfólks í hvívetna. Utanaðkomandi aðstoð við keppendur er óheimil, nema í neyð. Þátttakendum ber að aðstoða aðra þátttakendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.

Þátttakendur bera ábyrgð á eigin búnaði og ber að klæða sig eftir veðri og veðurspá. Skyldubúnaður í lengra hlaupinu er eftirfarandi:

  • Drykkjarmál til að sækja vatn í læki og/eða á drykkjarstöðvum
  • Fullhlaðinn farsími
  • Álteppi
  • Flauta
  • Húfa/buff og hanskar

Þátttakendur skulu hafa keppnisnúmer sýnilegt allt hlaupið.

Keppnisstjóri getur vísað þeim sem fylgja ekki settum reglum úr hlaupinu. Einnig er keppnisstjóra heimilt að stöðva hlaupið eða aflýsa því vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Með skráningu í hlaupið samþykkir þátttakandi framangreinda skilmála.

ITRA/UTMB-stig

Lengra hlaupið gefur 2 ITRA-punkta og bæði hlaupin gefa ITRA-stig.

Gisting

Nokkrir gistimöguleikar eru á svæðinu bæði í kringum Hólmavík, Drangsnes, í Bjarnarfirði og í Árneshreppi, sjá nánar á http://strandagangan.123.is/page/37454 og http://www.arneshreppur.is/gisting.html.

Opnunartímar sundlauga á hlaupdegi
  • Sundlaugin á Hólmavík til kl. 21:00
  • Sundlaugin á Laugarhóli í Bjarnarfirði til kl. 22:00
  • Sundlaugin á Drangsnesi til kl. 18:00
  • Pottarnir á Drangsnesi eru opnir allan sólarhringinn
  • Sundlaugin á Krossnesi í Árneshreppi er opin allan sólarhringinn

Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins er https://trekyllisheidin.com

Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Óskarsdóttir (allaoskars@gmail.com), S: 868 7156