Mývatns Maraþon verður haldið 30. maí 2009 og er að venju hlaupið í kringum vatnið. Keppnin í ár verður með breyttu fyrirkomulagi og er ræst og endað við Jarðböðin.
Staðsetning og tími Keppni í öllum vegalengdum fer fram á sama degi, laugardeginum 30. maí. Tímasetningar eru eftirfarandi: - 12:00 Maraþon hefst
- 13:00 ½ Maraþon hefst
- 14:00 10 km og 3 km hlaup hefst
- 18:00 Verðlaunaafhending hefst
Brautin Flatur hringur kringum Mývatn, sem er þekkt fyrir náttúrulega fegurð, yfirborð vegarins er malbikað.
Flokkaskipting
Maraþon - Konur og karlar 18-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
Hálfmaraþon - Konur og karlar 16-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
10 km - Konur og karlar 17 ára og yngri
- Konur og karlar 18-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
3 km (konur og karlar) - 15 ára og yngri
- 16 ára og eldri
Skráning og skráningargjöld - Maraþon 5.500 kr
- Hálfmaraþon 4.500 kr
- 10 km 3.500 kr
- 3 km 2.500 kr fyrir 12 ára og eldri
- 3 km 1.500 kr fyrir 11 ára og yngri
Forskráning er hér á hlaup.is.
Sveitakeppni Sveitakeppni í öllum vegalengdum nema 3 km. Sveitakeppnin er opinn flokkur og er hámark 5 í hverjum flokki en 3 bestu tímarnir gilda.
Verðlaun og annað Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening og T-bol og ókeypis í jarðböðin við Mývatn. Útdráttarverðlaun og verða gjafabréfin á staðnum að þessu sinni.
Upplýsingar Upplýsingar í síma 464 4390. Tengiliður: Þorgeir Gunnarsson, e-mail: marathon@visitmyvatn.is.
Einnig á heimasíðu hlaupsins.
|