Eftirfarandi fyrirlestrar verða á skráningahátíð Reykjavíkurmaraþons, í fyrirlestrarsal Laugardalshallar.
Fræðsluerindi á skráningahátíð þar sem fundarstjórn verður í höndum Gunnars Páls Jóakimssonar.
Tímasetning  | Fyrirlestur  | 
17:00  | Frábær árangur Björns í Laugavegshlaupinu „Björn lýsir undirbúningi og upplifun af hans fyrsta Laugavegshlaupi, sem hann hljóp á 4:19:55 klst., og fjallar hann um hvernig grunnur hans sem millivegalengdahlaupari nýttist." Björn Margeirsson  | 
17:40  | Að uppskera árangur erfiðisins „Hollráð fyrir síðustu metra undirbúningsins fyrir hlaupið, næringarleg hollráð í bland við önnur hollráð" Steinar B. Aðalbjörnsson og Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingar  | 
18:20  | Reynsla Kára Steins af Ólympíuleikunum í London „Kári segir frá reynslu sinni af nýafstöðnu maraþonshlaupi á Ólympíuleikunum í London þar sem að hann hafnaði í 42. sæti" Kári Steinn Karlsson  |