Hlaupanámskeið

Hlaup.is heldur námskeið fyrir hlaupara, byrjendur og lengra komna, þar sem farið er yfir helstu atriði í tengslum við hlaupaþjálfun og flest þau atriði sem huga þarf að í tengslum við hlaup. Hlaupanámskeiðin henta vel sem grunnur fyrir byrjendur eða lengra komna sem langar til að fræðast og ná meiri hraða og úthaldi. Námskeiðið er líka frábær viðbót fyrir alla þá sem stunda hlaup reglulega með skokkhópum.