Stofnað hefur verið félag áhugamanna um utanvegahlaup, sem fengið hefur nafnið FÍFUR (Félags Íslenskra Fjalla- og Utanvegaráfara). Komin eru drög að hlaupadagskrá og er öllum velkomið að taka þátt í þessum hlaupum. Stefnt er að einu hlaupi í mánuði fram til vors en boðið verður upp á tíðari hlaup þegar líður að sumri. Auk þess kemur til greina að boða til hlaupa með skömmum fyrirvara í nágrenni borgarinnar þegar veðurútlit er gott.
Dagskrá:
| Dags | Hlaupaleið |
| 2/1 | Skarðsmýrarfjall |
| 29/1 | Kringum Mosfell |
| 26/2 | E-ð nálægt, á vegi |
| 5/3 | Marsmaraþon |
| 19/3 | E-ð nálægt, á vegi |
| 23/4 | Nesjavellir/Nesjahraun |
| 12/5 | Hveradalir/Kattartjarnir |
| 26/5 | Hlöðufell/Laugavatn |
| 9/6 | Fimmvörðuháls |
| 24/6 | Mývatnsmaraþon |
| 25-26/6 | Hlaupahelgi í Mývatnssveit |
| 2/7 | Þorvaldsdalshlaup eða Laxárdalur |
| 5/7 | Vatnsneshlaup |
| 16/7 | Laugavegurinn |
| 25/7 | Jökulsárhlaup |
| 30/7 | Barðsneshlaup |
| 20/8 | Reykjavíkurmaraþon |
Stefnt er að því að koma upp póstlista sem áhugasamir geta skráð sig á.
Allar nánari upplýsingar veita Áslaug Helgadóttir, 843-5325, aslaug(hja)lbhi.is; Þórður Sigurvinsson, tordurgs(hja)mmedia.is, 993-3756 Katrín Þórarinsdóttir, katrin.tor(hja)visir.is, 557-4242; og Sigurður Þórarinsson, sigurdur_thorarinsson(hja)hotmail.com.
Fyrsta hlaupið verður farið næstkomandi laugardag í kringum Mosfellið. Stefnt er að því að hittast við Breiðholtslaug kl. 9:30.