Hlaupasamfélagið býður upp á undirbúningsnámskeið fyrir Laugavegshlaupið og fjölda annarra hlaupa, bæði utanvegahlaup og götuhlaup. Þú færð einkaþjálfun sem byggir á persónubundinni mánaðarlegri æfingáætlun sniðin að þinni getu og þínu markmiði.

Hlaupasamfélagið2025 04 10 18.17.40
Æfing í Heiðmörk

Hlaupasamfélagið er með þjálfun allt árið, en áhersla er lögð á tímabilið 1. janúar – 31. ágúst og hægt er að byrja einhvern tímann á þessu tímabili. Þeir sem ætla að undirbúa sig fyrir Laugavegshlaupið þurfa að byrja í síðasta lagi í byrjun mars.

Samæfingar í janúar og febrúar eru á sunnudagsmorgnum og á fimmtudögum frjálsíþróttahúsinu í Kaplakrika, en þá er miðað við að taka gæðaæfingar með stuttum og löngum sprettum ásamt styrktar- og liðleikaæfingum til undirbúnings frekari fjallahlaupum.

Frá mars er miðað við tvær samæfingar í viku á mánudögum og fimmtudögum, aðallega í Heiðmörkinni og við Hvaleyrarvatn. Einnig verður farið í nokkrar sameiginlegar fjallaæfingar á Esjuna, Hengilinn, Reykjadal, Helgafell ofl.

Áhersla er lögð á hraðaúthaldsþjálfun ásamt umtalsverðri fjallahlaupa- og brekkuþjálfun samhliða liðleika- og styrktarþjálfun.

Þjálfarar eru Sigurður P. Sigmundsson (36 ára þjálfunarreynsla og fyrrum Íslandsmethafi í maraþoni) og Torfi H. Leifsson (18 ára þjálfunarreynsla og umsjónarmaður hlaup.is).

Vinsamlegast hafið samband við Sigurð P. Sigmundsson (siggip@hlaup.is) varðandi nánari upplýsingar.

Hlaupasamfélagið 2025 01 09 18.36.01
Æfing í Kaplakrika
Þjálfarar

Sigurður  P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is

Torfi H. Leifsson, torfi@hlaup.is

Hlaupasamfélagið 2025 03 05 17.57.24
Æfing í Laugardal