Um hlaupið

  • Vegalengdir400 m, 2 km, 5 km
  • Dagsetning1. maí 2025

UFA hefur haldið 1. maí hlaupið allt frá fyrstu starfsárum sínum og hefur hlaupið vakið lukku hjá ungum sem öldnum enda mikil áhersla á gleði og að fá sem flesta til að hlaupa með okkur.

Hlaupaleiðir og vegalengdir

Sjá kort af hlaupaleiðunum neðst á þessari síðu.

Leikskólahlaup: 400 m fyrir börn fædd 2019 og síðar
Grunnskólahlaup: Val milli 2 km eða 5 km
Fólk á öllum aldri: 5 km hlaup

Hlaupið er frá Þórsvellinum, þ.e. frjálsíþróttavellinum við Bogann.

Hlaupaleið í 2 km hlaupi
Hlaupið er ræst við suðurenda stúkunnar. Hlaupið eftir brautinni en út af henni á móts við Bogann. Hlaupið eftir stéttinni meðfram Boganum og út um hliðið neðan við hann. Þar er tekin u-beygja og farið inn á malarveginn neðan við íþróttavöllinn. Stígurinn hlaupinn út á enda og niður Háhlíð. Beygt þar til hægri og hlaupið eftir Höfðahlíðinni framhjá Glerárskóla upp að Drangshlíð. Beygt þar til hægri og inn á stíginn ofan við íþróttavöllinn. Hlaupið eftir stígnum að Hamri og inn á völlinn ofan við Hamar og endað inni á vellinum á sama stað og byrjað var.

Hlaupaleið í 5 km hlaupi
Hlaupið er ræst á vellinum hlaupið "öfugan" hring á vellinum fyrstu 300 metrana, og útaf honum í gegnum hlið hjá Glerárskóla, beygt til vinstri og hlaupið framhjá "Garðinum hans Gústa", beygt til hægri og hlaupið að og yfir Höfðahlíð. Beygt til hægri og hlaupið meðfram Höfðahlíðinni þar til beygt er til vinstri yfir rauðu göngubrúna yfir Glerá. Hlaupið undir Borgarbraut (undirgöng) beygt strax til vinstri eftir göngin og aftur til vinstri þegar komið er að Borgarbraut. Hlaupið er upp Borgarbrautina og inn á göngustíginn sem liggur ofan Glerár og honum fylgt upp á Hlíðarbraut og síðan niður á Þingvallastræti. Beygt inn á göngustíg á móts við Hrísalund, framhjá háskólanum og gegnum undirgöngin undir Borgarbrautina, yfir Glerá og upp á Höfðahlíð. Krækt niður fyrir Glerárskóla og inn á völlinn að markinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar á ufa.is.