Adidas Boost hlaupið fer fram miðvikudaginn 31. júlí kl. 20:00.
Um er að ræða skemmtilegt hlaup á hraðri braut. Tilvalið til að bæta 10 km tímann sinn rétt fyrir Verslunarmannahelgina. Adidas Boost hlaupið var valið annað besta götuhlaup ársins 2022 af lesendum hlaup.is.
- Sjáðu myndir frá hlaupinu 2023
- Sjáðu myndir frá hlaupinu 2022
- Sjáðu myndir frá hlaupinu 2021
- Sjáðu myndir frá hlaupinu 2018
- Sjáðu myndir frá hlaupinu 2017
Staðsetning
Hlaupið hefst við Rafstöðvarheimilið í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal. Bílastæði neðst við Rafstöðvarveg. Einnig er hægt að leggja við Ártúnsskóla og eða Árbæjarsafn sem er stutt frá upphafi og enda hlaupsins. Fólk er hvatt til að koma gangandi/hjólandi t.d úr Fossvogi, Breiðholti, Árbæ, Ártúnsholti og víðar enda aðgengi með göngustígum orðið virkilega gott í Elliðaárdal.
Eftir hlaupið verður gaman á svæðinu fyrir neðan endamarkið, á skemmtilegu útisvæði OR við rafstöðvarheimilið, næring, drykkir, verðlaunaafhendingar, útdráttarverðlaun, tónlist og stemning. Í hlaupinu verður íþróttadrykkur og vatn í boði við Víkingsheimilið.
Vegalengd
10 km hlaupaleið sem ætti að vera fýsilegur kostur til bætinga að mati skipuleggjanda.
Hlaupaleið
Hægt er að sjá kort af leiðinni hér neðst á síðunni.
Hlaupaleiðin er 10 km, löglega mæld af FRÍ. Heildarfall (lækkun) í hlaupaleið er um 9 metrar sem er löglegt, en 10 km hlaup má falla/lækka sem nemur einum metra fyrir hvern kílómetra til að teljast innan löglegra marka. Hlaupið hefst efst í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal og hlaupið er upp Elliðaárdalinn undir brúna við stífluna, að Fylkisvelli og Árbæjarsundlaug og meðfram Fylkisvelli og síðan til hægri yfir brúna. Síðan göngustígar niður Elliðaárdalinn, alla leið að undirgöngum inn í Fossvog, framhjá Víkingsheimili, á hjólastíg mest alla leið í Fossvogsdal og snúið við rétt áður en komið er að Svartaskógi og svo göngustígur til baka, framhjá Víkingsheimili, undirgöng og beint yfir Elliðaárdalinn á Rafstöðvarveg, framhjá gömlu rafstöðinni og endasprettur áfram og aðeins inn í rafstöðvabrekkuna.
Leiðin er teiknuð með það í huga að vera skemmtileg í flottu umhverfi að sumarkvöldi og samtímis hröð og því góð til bætinga. Eftir hlaup verður verðlaunaafhending og gaman á útivistarsvæði OR neðst (sjá kort).
Flokkaskipting
Aldursskipting hjá báðum kynjum:
- 15 ára og yngri
- 16-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri
Verðlaun
Vinningar fyrir fyrstu þrjá í hlaupinu, karla og kvenna. Einnig fyrir sigurvegara í hverjum aldursflokki karla og kvenna. Glæsileg útdráttarverðlaun, m.a. reiðhjól eins og undanfarin ár.
Þátttökugjald og skráning
Skráning er hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
Forskráðir fyrir kl. 24 laugardaginn 27. júlí:
- 3.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2008 og fyrr)
- Frítt fyrir 15 ára og yngri (f. 2009 og síðar)
Skráning eftir kl. 24 laugardaginn 27. júlí:
- 4.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2008 og fyrr)
- 500 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 2009 og síðar)
Skráningu lýkur þriðjudaginn 30. júlí kl. 24:00.
Keppnisgögn eru afhent í verslun Mi Iceland í Ármúla 21 milli kl. 12 og 18 á hlaupdag.
Nánari upplýsingar
Á Facebook: Adidas Boost hlaupið
Nánari upplýsingar veitir Ívar Trausti, netfang ivar@komaso.is eða skilaboð í farsíma 8242266.