Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6, miðvikudaginn 2. júlí klukkan 20:00.
- Myndir frá hlaupinu 2024
- Myndir frá hlaupinu 2023
- Myndir frá hlaupinu 2022
- Myndir frá hlaupinu 2020
- Myndir frá hlaupinu 2019
- Myndir frá hlaupinu 2018
- Myndir frá hlaupinu 2017
- Myndir frá hlaupinu 2016
Um hlaupið
- Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata og hraða braut
- Peningaverðlaun í formin inneignar hjá Aukakrónur verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. 60 þúsund Aukakrónur fyrir 1. sæti, 30 þúsund Aukakrónur fyrir 2. sæti og 15 þúsund Aukakrónur fyrir 3. sæti
- Sigurvegarar í hverjum aldursflokki karla og kvenna fá 10 þúsund Aukakrónur í verðlaun hver.
- Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði.
- Hlaupið er jafnframt Íslandsmót í 10 km hlaupi
Hlaupaleið
Sjá Google kort neðst á þessari síðu.
Leiðin er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni. Eftir honum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir sömu leið, hægri umferð gildir á göngustígnum. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.
Skráning
Forskráningu lýkur föstudaginn 27. júní á miðnætti. Skráningargjald er 4.000 krónur en 5.000 krónur eftir að forskráningu lýkur. Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudag og þriðjudag 30. júní og 1. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 til 19.30. Gengið er inn um aðalinngang.
Skráning fer fram á netskraning.is.
Hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu til og með þriðjudagsins 1. júlí, ekki verður hægt að gera nafnabreytingu á hlaupdegi.
Aðstaða
Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 hlaupdaginn. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni.
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. 60 þúsund Aukakrónur fyrir 1. sæti, 30 þúsund Aukakrónur fyrir 2. sæti og 15 þúsund Aukakrónur fyrir 3. sæti. Sigurvegarar í hverjum aldursflokki karla og kvenna fá verðlaun, 10 þúsund Aukakrónur en jafnframt því verða vegleg útdráttarverðlaun í boði.
Aldursflokkar eru í samræmi við reglugerð FRÍ um götuhlaup. Tekið er fram að samkvæmt reglugerðinni geta einstaklingar yngri en 12 ára ekki fengið árangur skráðan í afrekaskrá, þeim er þó heimilt að skrá sig í hlaupið.
Keppt er til verðlauna í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja:
- 12 ára
- 13 ára
- 14 ára
- 15 ára
- 16-17 ára
- 18-19 ára
- 20-22 ára
- 23-39 ára
- 40-44 ára
- 45-49 ára
- 50-54 ára
- 55-59 ára
- 60-64 ára
- 65-69 ára
- 70-74 ára
- 75-79 ára
- 80-84 ára
- 85-89 ára
- 90 ára og eldri
Skipuleggjendur
Framkvæmd hlaupsins er í höndum frjálsíþróttadeildar Ármanns.
Frjálsíþróttadeild Ármanns
kt. 491283-0339
Engjavegi 7
104 Reykjavík
Símanúmer: +354 863 9980 (Örvar Ólafsson)
orvar@frjalsar.is