Bakgarður Náttúruhlaupa (Iceland Backyard Ultra) verður haldinn laugardaginn 21. september. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/). Hlaupin verður 6,7 km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern hring.
Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?
Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km)
- Facebook síða: facebook.com/icelandbackyardultra
- Staðsetning: Elliðabær, Heiðmörk
- Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 21. september
- Hlaupaleið: 6,7 km hringur í Heiðmörk, byrjar og endar við Elliðavatnsbæ
- Vegalengd: Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!
- Tímamörk: Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7 km innan klukkutíma
- Úrslit: Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára.
- Hámarksfjöldi: 200 í Bakgarðshlaupinu
- Verðlaun: Þátttöku-/DNF viðurkenning fyrir alla sem taka þátt. Ef þú hleypur 8 hringi eða fleiri færðu veglegri viðurkenningu.
Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks allan daginn fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili og hlauparar sem halda áfram eftir 8 hringi geta nýtt aðstöðu inni í Elliðavatnsbæ.
Skráning fer fram á netskraning.is.
Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins: facebook.com/icelandbackyardultra
Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running
Nánari upplýsingar natturuhlaup@natturuhlaup.is.