Þátttökugjald

  • 5 mín brettahlaup1.000 kr
  • 20 mín brettahlaup1.000 kr
  • 5 mín og 20 mín brettahlaup1.500 kr

Um hlaupið

  • Dagsetning16. apríl 2026

BRETTAHLAUP Garmin er keppni þar sem þú hleypur á bretti, skráir tímann hér á hlaup.is og reynir að komast í úrslitakeppnina. BRETTAHLAUP Garmin skiptist upp í forkeppni þar sem allir skrá tímana sína og síðan úrslitakeppni, þar sem 5 efstu keppa sín á milli bæði í karla- og kvennaflokki.

Úrslitakeppnin er áætluð fimmtudaginn 16. apríl.

Tegundir brettahlaups

Þú getur valið um tvær mismunandi aðferðir.

  • Lengri vegalengdin. Þú hleypur á bretti eins langt og þú kemst á 20 mínútum.
  • Styttri vegalengdin. BRETTASPRETTUR, þar sem ferð eins langt og þú kemst á 5 mínútum.

Skráning og þátttökugjald

Skráning fer fram hér á Hlaup.is og er hægt að skrá sig í hlaupið til miðnættis sunnudaginn 12. apríl og síðasti möguleikinn til að skrá tímana er til miðnættis mánudaginn 13. apríl, en þá lýkur forkeppninni.

Verð er aðeins kr. 1.000 hvert hlaup og ef þú vilt taka þátt í báðum þá getur þú keypt báðar vegalengdirnar á kr. 1.500. Þú notar kennitöluna þína þegar þú skráir vegalengd sem þú fórst á sérstakt skráningarform hér á hlaup.is.

Framkvæmd

Þú hleypur þegar þér hentar og á hvaða hlaupabretti sem þú vilt. Hitar vel upp. Slekkur svo á brettinu og ert þá tilbúin(n) að keppa. Ýtir á start, setur á hraða sem þú ræður við og gerir þitt besta. Eftir nákvæmlega 20 mínútur (eða 5 mínútur) þá ýtir þú á stopp og þarft að passa að taka eftir heildarvegalengdinni (óvitlaust er að taka mynd af skjánum).

Þú skráir svo vegalengdina hér á hlaup.is fyrir miðnætti mánudaginn 13. apríl en þá lýkur forkeppninni.

Í úrslitum keppa samtímis þeir 5 hröðustu úr forkeppninni. 5 konur og 5 karlar. Fyrst 5 konur allar samtímis og síðan 5 karlar samtímis. Keppendur taka þátt á sína ábyrgð. Dregin verða út nokkur góð útdráttarverðlaun þegar lokað hefur verið fyrir skráningar.

Staðan verður uppfærð og birt á hlaup.is og Facebook viðburðarsíðu hlaupsins.

Nánari upplýsingar

Ívar Jósafatsson, ivar@komaso.is