BRETTAHLAUP Garmin er keppni þar sem þú hleypur á bretti, skráir tímann hér á hlaup.is og reynir að komast í úrslitakeppnina. BRETTAHLAUP Garmin skiptist upp í forkeppni þar sem allir skrá tímana sína og síðan úrslitakeppni, þar sem 5 efstu keppa sín á milli bæði í karla- og kvennaflokki.
Úrslitakeppnin er áætluð helgina 23-24. maí, nánari upplýsingar síðar.
Tegundir brettahlaups
Þú getur valið um tvær mismunandi aðferðir.
- Lengri vegalengdin. Þú hleypur á bretti eins langt og þú kemst á 20 mínútum.
- Styttri vegalengdin. BRETTASPRETTUR, þar sem ferð eins langt og þú kemst á 5 mínútum.
Skráning og þátttökugjald
Skráning fer fram hér á Hlaup.is og er hægt að skrá sig í hlaupið til miðnættis sunnudaginn 17. maí og síðasti möguleikinn til að skrá tímana er til miðnættis mánudaginn 18. maí, en þá lýkur forkeppninni.
Eftirfarandi möguleikar eru í boði:
- 5 mín brettahlaup - 1.000 kr
- 20 mín brettahlaup - 1.000 kr
- 5 mín og 20 mín brettahlaup: Ein vegalengd skráð fyrir hvora grein - 1.500 kr
- 5 mín og 20 mín brettahlaup: Ótakmarkaðar skráningar á vegalengd skráð fyrir hvora grein - 2.000 kr
Þú notar kennitöluna þína þegar þú skráir vegalengd sem þú fórst á sérstakt skráningarform hér á hlaup.is.
Skráningarform fyrir hlaupna vegalengdir á brettinu.
Framkvæmd
Þú hleypur þegar þér hentar og á hvaða hlaupabretti sem þú vilt. Hitar vel upp. Slekkur svo á brettinu og ert þá tilbúin(n) að keppa. Ýtir á start, setur á hraða sem þú ræður við og gerir þitt besta. Eftir nákvæmlega 20 mínútur (eða 5 mínútur) þá ýtir þú á stopp og þarft að passa að taka eftir heildarvegalengdinni (óvitlaust er að taka mynd af skjánum).
Þú skráir svo vegalengdina hér á hlaup.is fyrir miðnætti mánudaginn 13. apríl en þá lýkur forkeppninni.
Í úrslitum keppa samtímis þeir 5 hröðustu úr forkeppninni. 5 konur og 5 karlar. Fyrst 5 konur allar samtímis og síðan 5 karlar samtímis. Keppendur taka þátt á sína ábyrgð. Dregin verða út nokkur góð útdráttarverðlaun þegar lokað hefur verið fyrir skráningar.
Staðan verður uppfærð og birt á hlaup.is og Facebook viðburðarsíðu hlaupsins.
Nánari upplýsingar
Ívar Jósafatsson, ivar@komaso.is
