Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar er drulluskemmtilegt hlaup þar sem fjölskyldan vinnur saman að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins í Mosfellsbæ, sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.
Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga þar sem tíminn skiptir ekki máli heldur að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni. Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.
Vegalengdir og tímasetningar
Hlaupið fer fram laugardaginn 17. ágúst kl. 10 við Íþróttamiðstöð UMFA við Varmá Mosfellsbæ.
Hlaupið er 3,5 km hindrunarhlaup og inniheldur 21 hindrun.
Hvernig fer viðburðurinn fram?
Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi en hringurinn er 3,5 km langur með fjölda hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldur hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar. Hlaupaleiðin er skemmtileg og krefjandi en þó eiga allir, 8 ára og eldri, að komast í gegnum hana með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna.
10 manna hópar verða ræstir út með 2 mínútna millibili frá kl. 10:00. Við skráningu fá þátttakendur úthlutaðan tíma.
Rás- og endamark er staðsett við Íþróttahúsið við Varmá og þar mun ríkja partýstemning frá því að hlaupið hefst og þar til því er lokið. Þar verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum.
Það verður skolstöð á staðnum til að skola af sér eftir hlaupið og frítt í sund fyrir þátttakendur.
Skráning
Skráning á netskraning.is. Þátttökugjald er eftirfarandi:
- Einstaklingsskráning: 3.500 kr fyrir hvern þátttakanda
- Hópskráning (4 í hóp): 7.000 kr fyrir hvern 4. manna hóp.
Afhending gagna er við upphaf hlaupsins við Varmársvöll í Mosfellsbæ.
Umsjón
Umsjón með hlaupinu hefur Frjálsíþróttadeild Ungmennafélags Aftureldingar.