Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 16. ágúst kl 10:00 á Ólafsfirði.
Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhlaupinu! Flott umgjörð, tónlist, úrdráttarveðlaun, veitingar eftir keppni, allir fá þátttökuverðlaun en fyrst og fremst höfum við gaman!

Vegalengdir og skráning
Hægt verður að velja um nokkrar vegalengdir, Barnahlaup, 5 km eða 10 km götuhlaup (skemmtiskokk), 18 km og 32 km utanvegahlaup.
- Barnahlaup fyrir 10 ára og yngri, ekkert þátttökugjald
- 5 km og 10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
- 18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
- 32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
Leiðarlýsing
Barnahlaup
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar. Hlaupið ætlað 5 ára og yngri, 6-8 ára og 9-10 ára.
5 km og 10 km götuhlaup
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 km eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
18 km fjallahlaup
- Hlaupið er fyrir 12 ára og eldri
- Heildarhækkun: 656m
- Drykkjarstöðvar: 1
- GPX track: væntanlegt
- ITRA stig: 1
Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-Árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmlega 18 km löng.
32 km fjallahlaup
- Hlaupið er fyrir 17 ára og eldri
- Heildarhækkun: 1.291m
- Drykkjarstöðvar: 2
- GPX track: væntanlegt
- ITRA stig: 2
Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 32 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 600 m hæð yfir sjó.
- Relive útgáfa af leiðinni Siglufjörður / Héðinsfjörður
- Relive útgáfa af leiðinni Héðinsfjörður / Ólafsfjörður
Dagskrá fyrir laugardaginn 16. ágúst
32 km Siglufjörður - Ólafsfjörður
- Kl. 09:00 Afhending gagna við Sigló Hótel
- Kl. 10:00 Ræst út frá Sigló Hótel
- Leiðin er merkt alla leið nema fyrstu km sem eru á malbiki og svo góðum slóða.
- Drykkjarstöð er í Héðinsfirði og önnur eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
- Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
- Tímamörk í drykkjarstöð Héðinsfirði 2 klst og 30 min.
18 km Héðinsfjörður - Ólafsfjörður
- Kl. 10:00 Afhending gagna í Héðinsfirði
- Kl. 11:00 Ræst út í Héðinsfirði.
- Leiðin er merkt alla leið.
- Drykkjarstöð eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
- Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
5 km og 10 km skemmtiskokk
- Kl. 11:00 Afhending gagna við Kaffi Klöru
- Kl. 12:00 Ræst út frá Kaffi Klöru
Barnahlaup 10 ára og yngri
Skráning og ræsing við Kaffi Klöru
- Kl. 12:10 Ræst út frá Kaffi Klöru
Endamark er við Kaffi Klöru þar sem verður frábær stemmning! Verðlaunaafhending kl 15:00 við Kaffi Klöru Ólafsfirði
Nánari upplýsingar
Sendið póst á: fjardargangan@gmail.com
Kort af leiðinni
