Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning9. apríl 2026

Góðgerðarhlaup Nemendafélags Fjölbrautaskólans í Garðabæ fer fram í Garðabæ 9. apríl 2026. Allur ágóði af Góðgerðarhlaupi NFFG 2026 rennur til barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Hlaupið hefst við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, Skólabraut 6.

Tímasetning

Fimmtudagurinn 9. apríl 2026 kl. 16:30.

Vegalengdir

Boðið er upp á 10 km, 5 km og 2 km með tímatöku. Hlaupið er ræst þannig að 10 km hlauparar fara af stað 16:30, 5 km hlauparar fara af stað 16:35 og 2 km hlauparar fara af stað 16:40. Í 10 km hlaupinu er 5 km hringurinn hlaupinn tvisvar. Rásmark og endamark er fyrir framan Fjölbrautaskólann í Garðabæ.

Sjá kort af leiðunum neðst á þessari síðu.

Skráning

Skráning fer fram á hlaup.is, sjá hér fyrir ofan, til kl. 23:59 miðvikudaginn 8. apríl. Ekki er hægt að skrá á staðnum en afhending keppnisgagna er frá kl 16:00 í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.

Þátttökugjald

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 1.500 kr. fyrir 2 km (ath. verð frá 2025, gæti breyst)
  • 2.500 kr. fyrir 10 km og 5 km (ath. verð frá 2025, gæti breyst)

Innifalið í þátttökugjaldi er flögutímataka og brautarvarsla.


Nánari upplýsingar

Jónas Breki Kristinsson - godgerdarvikafg@gmail.com