Um hlaupið

  • Vegalengdir8,5 km
  • Dagsetning14. júní 2025

Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn sem fram fer þann 14. júní og hefst kl. 11 við gróðurhúsið niður við vatn.

Vegalengd og leið

Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn. Tímataka fer fram með flögum.

GUL2018 0079
Vaðið í Laugarvatni
Skráning og þátttökugjald

Skráning fer fram á netskraning.is.

Afhending gagna hefst kl. 8:00 á hlaupdag. Hámarksfjöldi þátttakenda er 350 manns.

Þátttökugjald er kr. 7.500 kr. fyrir 15 ára og eldri (fæðingarár 2010).

Ath! Börn 14 ára og yngri verða að hlaupa í fylgd með fullorðnum, skráningargjald 1.500 krónur fyrir þau. Athugið að hægt verður að afskrá sig og fá þátttökugjöld endurgreidd til og með 31. maí.

Verðlaun

Verðlaun fyrir fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki og vegleg útdráttarverðlaun.
Þátttakendum boðið upp á hverabrauð Fontana, Egils gull, Kókómjólk, Hleðslu og reyktan úteyjarsilung að loknu hlaupi.

Annað

Búningsaðstaða stendur keppendum til boða í Íþróttahúsi Bláskógabyggðar á Laugarvatni. Að auki geta keppendur geymt verðmæti í verðmætageymslu í Íþróttahúsinu á meðan hlaupi stendur.

Aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni er innifalinn.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar inn á vefsíðu hlaupsins gullspretturinn.is