Um hlaupið

  • Vegalengdir2,3 km, 14,4 km, 22,7 km, 33 km
  • Dagsetning28. júní 2025

Hafnarfjall Ultra er utanvegahlaup sem ræst verður í fyrsta sinn í Borgarnesi laugardaginn 28. júní 2025. Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi stendur að hlaupinu, en hópurinn hefur um árabil staðið fyrir Flandrasprettum, sem eru 5 km götuhlauparöð sem haldin er mánaðarlega yfir vetrarmánuðina.

Vegalengdir

Þátttakendur í Hafnarfjall Ultra geta valið milli fjögurra vegalengda:

  • Hafnarfjall Tindur 14,4 km, 912 m hækkun
  • Hafnarfjall 7 tindar 22,7 km, 1.377 m hækkun
  • Hafnarfjall 7 tindar og dalir 33,0 km, 2.453 m hækkun
  • Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,3 km, 167 m hækkun

Lengsta hlaupið gefur tvo ITRA-punkta og 22,5 km hlaupið gefur einn ITRA-punkt. Öll hlaupin gefa ITRA-stig.

Þrjú lengri hlaupin eru ræst við Menntaskóla Borgarfjarðar, við hliðina á Nettóversluninni í Borgarnesi – og enda á sama stað.  Fjölskylduhlaupið er hins vegar ræst á malarvegi við rætur Hafnarfjalls.

Nánari upplýsingar

Facebook síða hlaupsins

Kristinn Óskar Sigmundsson, kiddo1@simnet.is, 852 2203 Stefán Gíslason, stefan@environice.is, 862 0538